Rooney hjónin alltaf í fríi

Rooney-fjölskyldan í Dúbaí.
Rooney-fjölskyldan í Dúbaí. Skjáskot/Instagram

Fótboltakappinn Wayne Rooney og Coleen eiginkona hans hafa verið dugleg að skreppa til útlanda upp á síðkastið. Þau voru vart komin frá Dubai þegar þau ákváðu að skreppa aftur í sólina, nú til Spánar.

Þau dvelja á Ibiza og hafa verið dugleg að skemmta sér á kvöldin ásamt vinum sínum. Breskir fjölmiðlar hafa þar að auki tekið eftir því að Wayne Rooney mætti vera duglegri að bera á sig sólarvörn en hann er orðinn mjög rauður eftir sólina.

Mikið hefur mætt á Coleen Rooney undanfarið en hún er nú að bíða niðurstöðu dómstóla vegna meiðyrðamáls.

View this post on Instagram

A post shared by Wayne Rooney (@waynerooney)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert