Bestu flugfélög heims árið 2022

Qatar Airways er besta flugfélag heims samkvæmt AirlineRatings.
Qatar Airways er besta flugfélag heims samkvæmt AirlineRatings. AFP

Qatar Airways er besta flugfélag heims að mati vefsíðunnar AirlineRatings.com. Er þetta annað árið í röð sem flugfélagið er í fyrsta sæti listans. 

Það hefur ekki verið einfalt mál að gefa flugfélögum einkunn undanfarin tvö ár. Árin hafa litast af heimsfaraldri kórónuveiru sem hefur haft gríðarlega mikil áhrif á ferðamannaiðnaðinn um heim allan. Sumarið hefur ekki verið öllu betra og mannekla á stærstu og smæstu flugvöllum heims hefur valdið töfum og heilu bílfarmarnir af töskum týnast. 

Air New Zealand er í öðru sæti yfir bestu flugfélögin en áður en Qatar Airways náði fyrsta sætinu í fyrra hafði flugfélagið náð toppsætinu sex sinnum. 

Listi AirlineRating

  1. Qatar Airways
  2. Air New Zealand
  3. Etihad Airways
  4. Korean Air
  5. Singapore Airlines
  6. Qantas
  7. Virgin Australia
  8. EVA Air
  9. Turkish Airlines
  10. All Nippon Airways
  11. Cathay Pacific Airways
  12. Virgin Atlantic
  13. Japan Air Lines
  14. JetBlue
  15. Finnair
  16. Emirates
  17. Hawaiian
  18. Air France/KLM
  19. Alaska Airlines
  20. British Airways
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert