Slakað á við ströndina í Kankún

Það þykir leitun að jafnfallegum baðströndum og þeim sem finnast …
Það þykir leitun að jafnfallegum baðströndum og þeim sem finnast á Maya-rivíerunni. Ritz-Carlton

Það hefur verið mjög ánægjulegt að fylgjast með samfélagsmiðlum fyllast jafnt og þétt af myndum af ferðalögum Íslendinga til Mexíkó. Liggur straumurinn einkum til Yucatan-skagans og þá aðallega til austurstrandarinnar, Maya-rívíerunnar eins og svæðið er kallað, þar sem finna má vinsæla ferðamannabæi á borð við Kankún, Playa del Carmen og Túlum.

Skýrast auknar vinsældir Mexíkó mögulega af því að í kórónuveirufaraldrinum þótti einfalt að ferðast til landsins og gestir hvorki krafðir um bólusetningu né mótefnamælingu við komuna, en þess utan virðist Mexíkó einfaldlega vera að sækja á enda skemmtilegur, litríkur og hrífandi áfangastaður sem þarf ekki að vera svo dýrt að heimsækja.

Fyrir þá sem vilja sól og sand er Kankún rétti staðurinn til að byrja og er alþjóðaflugvöllur borgarinnar mjög vel tengdur við borgir í Bandaríkjunum og Evrópu. Frá Kankún er síðan auðvelt að halda ferðinni áfram á landi, meðfram strandlengjunni til suðurs eða til vesturs í átt að dularfullum musterum djúpt inni í frumskóginum.

Er samt vissara að lesendur fræðist um aðstæður áður en lagt er af stað, því eins og oft vill verða með vinsæla ferðamannastaði eru ýmsar gildrur sem þarf að varast svo að komast megi hjá bæði óþarfa leiðindum og óþarfa útgjöldum.

Chichen Itza er eitt af undrum veraldar og vel þess …
Chichen Itza er eitt af undrum veraldar og vel þess virði að heimsækja. Því miður er töluvert um ágenga sölumenn á svæðinu. Wikipedia - Kyle Simurod (CC)

Fyrir bæði rólegheitafólk og djammara

Fyrst af öllu er mikilvægt að skilja að Kankún ber það með sér að borgin laðar til sín fjölda Bandaríkjamanna í miklu partístuði. Þykir bandarískum unglingum það mikilvæg manndómsvígsla að ferðast til Mexíkó þegar þau hafa náð 18 ára aldri og komast í fyrsta skipti í áfengi, enda er áfengiskaupaaldurinn í Bandaríkjunum 21 ár.

Eru hótelin flest staðsett úti á löngu rifi, steinsnar frá sjálfri Kankúnborg, og ættu þeir sem vilja mikinn galsa og háværa skemmtistaði að halda sig við norðurhlutann á meðan hinir sem vilja rólegri og afslappaðri upplifun ættu að una sér betur sunnarlega á hótelsvæðinu.

Er í sjálfu sér ósköp fátt að sjá og gera í Kankún-borg en inn á milli hótelanna má finna merkjavöruverslanir og golfvelli. Þá er enginn hörgull á ferðaþjónustufyrirtækjum sem bjóða upp á styttri og lengri ferðir vilji fólk t.d. skoða fornar Maya-rústir, halda í köfunarleiðangur eða heimsækja skemmtigarð.

Flestum ætti að þykja hæfilegt að dvelja í tvær eða þrjár nætur á góðu hóteli í Kankún og láta stjana við sig. Er afskaplega gott að njóta strandlífsins í rólegheitum, ýmist áður en haldið er af stað í lengri leiðangur um Yukatan-svæðið, eða í lok ferðarinnar.

Skammt frá Kankún er eyjan Isla Mujeres þar sem meir …
Skammt frá Kankún er eyjan Isla Mujeres þar sem meir ró er yfir mannlífinu. Wikipedia - Thomassi Mickael (CC)

Best að leigja bíl og forðast leigubílana

Er rétt að vara sérstaklega við viðskiptaháttum leigubíla og rútufrumkvöðla á alþjóðaflugvellinum. Því miður hafa leigubílstjórarnir í Kanknún beitt miklum fantaskap til að ryðja í burtu fyrirtækjum á borð við Uber og er bæði leigubíllinn og flugrútan mun dýrari í Kankún en í öðrum borgum Mexíkó. Getur verið hagkvæmast og þægilegast að taka bíl á leigu og bjóðast mjög hagstæð kjör hjá bílaleigunum á flugvallarsvæðinu.

Þeir sem leigja bíl verða samt að vara sig á að á mexíkóskum bensínstöðvum sjá starfsmenn um að dæla og hafa sumir þeirra komist upp á lag með að plata erlenda ferðamenn. Ef starfsmaðurinn segir t.d. að kortavélin virki ekki er vissara að halda bara áfram á næstu stöð, því sennilega er maðkur í mysunni. Þegar bílnum er skilað, fyrir brottför, ætti að forðast að nota bensínstöðvarnar næst flugvellinum því þar virðast mestar líkur á að lenda í svikahröppum.

Um allan Yucatan-skagan eru vatnspyttir (sp. cenote) sem mikil upplifun …
Um allan Yucatan-skagan eru vatnspyttir (sp. cenote) sem mikil upplifun er að synda í. Flickr - Andrea S (CC)

Ekki missa af Chichen Itza

Er kjörið að verja einum degi á eyjunni Isla Mujeres. Tekur stutta stund að sigla þangað frá Kankún og er byggðin gönguvæn og notaleg. Nóg er af prýðilegum veitingastöðum sem stilla verðinu í hóf og einnig fjöldi ferðamannabúða sem selja alls konar glingur. Eyjan er mjó og löng og hægt að leigja litla golfkerru til að aka um svæðið, en kerrurnar eru dýrar og ætti að nægja flestum að fara fótgangandi um aðalbyggðarkjarnann. Nyrst á eyjunni eru strandklúbbarnir og hægt að leigja þar sólbekk fyrir lítið, og svamla aðeins í sjónum.

Af öðrum áfangastöðum í nágrenni Kankún má nefna eyjuna Holbox en til að komast þangað þarf að aka í tvo tíma til bæjarins Chiquilá í norðvestri og þaðan taka ferjuna. Holbox er einkar notalegur bær, mikil ró yfir samfélaginu, hótelin ekki dýr og veitingastaðirnir sömuleiðis. Er gaman að vaða sjóinn í átt að Punta Mosquito, og fylgjast með sólsetrinu frá Punta Cocos.

Þá er vel þess virði að heimsækja borgina Valladolid sem er sjarmerandi og gömul, en skammt þar frá er að finna Oxmán-vatnspyttinn (sp. cenote) og einstök upplifun að svamla þar. Er um tveggja tíma akstur frá Kankún til Valladolid og þaðan tekur svo tæpa klukkustund í viðbót að aka til rústa Maya-borgarinnar Chichén Itzá þar sem Kukulcán-musterið stendur.

Er frekar dýrt að borga sig inn á Chichén Itzá og ágengir sölumenn hafa fengið að leggja svæðið undir sig, en það sakar ekki að staldra við í eins og tvo tíma og sjá musterið með eigin augum.

Eins má halda í suðurátt, s.s. til strandbæjarins Playa del Carmen, sem er ódýrari en Kankún en hefur upp á margt að bjóða, eða alla leið til Tulum sem er í miklu uppáhaldi hjá sterkefnuðum áhrifavöldum.

Að vagga í svefn í hengirúmi við öldunið er toppurinn …
Að vagga í svefn í hengirúmi við öldunið er toppurinn á tilverunni og ekki verra að vera með nokkrar Margarítur í blóðrásinni. Ritz-Carlton

Hvar á að gista: Lúxuslíf í hengirúmi

Af mörgum góðum kostum í Kankún stendur Ritz-Carlton hótelið upp úr. Hótelið er bæði öruggt og notalegt, og hafa gestir aðgang að fyrirtaks strandlengju.

Er það peninganna virði að hreiðra um sig í skýli úti á ströndinni, slaka á í hengirúmi, hlusta á öldurnar og panta margarítur að hætti hússins.

Herbergin eru glæsileg og þægileg, starfsfólkið hugsar einkar vel um gestina, súshí-barinn er fyrsta flokks og mjög rómantískt að snæða kvöldverð í einu af strandskýlunum við sólsetur.

Það er ágætt að taka gott stopp á lúxushóteli í …
Það er ágætt að taka gott stopp á lúxushóteli í upphafi eða lok ferðalags. Það fer vel um gesti hjá Ritz-Carlton í Kankún. Ritz-Carlton
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert