Dóttir Bens Stiller ánægð með Íslandsferðina

Ólafur Darri Ólafsson ásamt Ellu Stiller (t.h.) og Phoebe Chaplin …
Ólafur Darri Ólafsson ásamt Ellu Stiller (t.h.) og Phoebe Chaplin (t.v.). Skjáskot/Instagram

Ella Stiller, dóttir leikarans Bens Stiller, kom hingað til lands í júlí ásamt föður sínum. Hin unga Stiller birti fjölda mynda úr heimsókninni og virðist heldur betur ánægð með landið. 

Eins og greint var frá fyrr í mánuðinum, kom leikarinn hingað til lands og hitti meðal annars leikarann Ólaf Darra Ólafsson en þeir léku saman í kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty hér á landi fyrir tíu árum. 

Með Stiller-feðginunum voru fjöldi vina og fjölskyldumeðlima sem einnig virðast hafa verið ánægðir með ferðina. Ólafur Darri virðist hafa staðið sig í stykkinu við að sýna þeim landið okkar og fór meðal annars með þau í buggy-bílaferð. 

Hópurinn heimsótti svo Friðheima, fór á hestbak og baðaði sig í Sky Lagoon og fleiri baðlaugum.

View this post on Instagram

A post shared by Phœbe Chaplin (@pchaps37)

View this post on Instagram

A post shared by Phœbe Chaplin (@pchaps37)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert