Í brúðkaupsferð í Afríku

Jillian Michaels gekk í hjónaband með unnustu sinni fyrr í …
Jillian Michaels gekk í hjónaband með unnustu sinni fyrr í mánuðinum. Skjáskot/Instagram

Stjörnuþjálfarinn Jillian Michaels og hönnuðurinn DeShanna Marie Minuto gengu í hjónaband í Miami í Bandaríkjunum hinn 11. júlí síðastliðinn. Þrátt fyrir að parið sé nú þegar opinberlega gift segist Michaels vera að skipuleggja brúðkaupsveislu með vinum og fjölskyldu í Feneyjum á Ítalíu í júní 2023. 

Samkvæmt People giftu Michaels og Minuto sig í réttarhúsi í Miami og fóru þaðan til suður Afríku þar sem þær héldu einkaathöfn og eyddu brúðkaupsferðinni. 

Michaels er þekktust fyrir að hafa verið þjálfari í þáttaröðum Biggest Loser á árum áður, en hún og Minuto hafa verið í ástarsambandi síðan árið 2018. Michaels bað Minuto í nóvember 2021 með glæsilegum hring með sjö karata hringlaga demanti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert