Fagnaði afmælinu með stæl á Ibiza

Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Dua Lipa fagnaði 27 ára afmæli sínu með stæl um helgina, en það er óhætt að segja að síðastliðin vika hafi verið sannkölluð afmælisvika þar sem tónlistarkonan naut sín í botn á ferðalagi með vinum sínum. 

Af myndum að dæma byrjaði vikan á rólegri nótunum og endaði á heljarinnar afmælispartíi þar sem hún fór ásamt vinum sínum yfir á uppáhalds eyju Lipa, Ibiza.

Í afmælispartíinu klæddist Lipa glæsilegum demantstopp úr nýrri haustlínu Marc Jacobs, ásamt síðu hvítu gallapilsi og mjög háum hælum. Stjörnur á borð við fyrirsætuna Vittoria Ceretti og franska hönnuðinn Ludovix de Saint Sernin voru meðal gesta veislunnar.

View this post on Instagram

A post shared by DUA LIPA (@dualipa)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert