Stunduðu kynlíf fimm sinnum á dag í brúðkaupsferðinni

Hjónin Luis Ruelas og Teresa Giudice.
Hjónin Luis Ruelas og Teresa Giudice. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Teresa Giudice gekk í hjónaband með Luis Ruelas hinn 6. ágúst síðastliðinn, en eftir brúðkaupið héldu hjónin í sjóðheita brúðkaupsferð þar sem Giudice segir þau hafa stundað kynlíf fimm sinnum á dag. 

„Við erum með mikla kynorku. Ég get ekki haldið tungunni minni frá munni hans, og hann getur ekki haldið tungunni sinni frá munni mínum,“ sagði Giudice í samtali við People. Í brúðkaupsferðinni ferðuðust hjónin um Evrópu og virtust eyða miklum tíma í svefnherberginu. 

Hún segir þetta vera aukningu frá daglegu lífi þeirra, en hún kom nýlega fram á viðburði í Fíladelfíu, Bandaríkjunum þar sem hún sagðist vanalega stunda kynlíf að minnsta kosti tvisvar á dag, á morgnana og á kvöldin. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Giudice talar opinskátt um kynlíf sitt, en þegar hún var nýskilin við fyrrverandi eiginmann sinn til 20 ára, Joe Giudice, sagðist hún vonast eftir maka sem myndi stunda kynlíf með henni þrisvar á dag hið minnsta. Hún virðist hafa fengið ósk sína uppfyllta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert