Fengu óvænta ukulele-kennslu um borð

Flestir um borð í vél Southwest Airlines til Havaí virðast …
Flestir um borð í vél Southwest Airlines til Havaí virðast hafa verið ánægðir með uppákomuna. Ljósmynd/Twitter

Skoðanir eru skiptar um uppákomu í flugi Southwest Airlines frá Long Beach til Havaí á dögunum þar sem farþegum var óvænt boðið upp á kennslu á ukulele. Flugfélagið skrifaði um uppákomuna á Twitter og stóð ekki á viðbrögðum þar. 

„Ég var ekki í þessu flgui, en ég myndi samt krefjast endurgreiðslu,“ skrifaði einn í gamni á Twitter. „Já ég held ég myndi enda á því að reyna að opna dyrnar,“ skrifaði annar. Einn spurði hversu margir hefðu krafist endurgreiðslu. 

Í fréttatilkynningu frá Guitar Center, sem sá um kennsluna um borð, segir að farþegum hafi verið kennt að spila lagið Hello, Aloha. How are you?

Southwest reyndi að róa mannskapinn á Twitter og sagði að allir hefðu lagt ukulele-ið til hliðar eftir 20 mínútur því þá hefðu allir verið búnir að læra lagið fullkomlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert