Tvífari Kylie Jenner sólar sig við hafið

Áhrifavaldurinn Anastasia Karanikolaou nýtur til hins ítrasta í sólinni, en …
Áhrifavaldurinn Anastasia Karanikolaou nýtur til hins ítrasta í sólinni, en hún þykir afar lík vinkonu sinni Kylie Jenner. Skjáskot/Instagram

Það væsir ekki um áhrifavaldinn Anastasiu Karanikolaou sem er um þessar mundir stödd í fríi, en af myndum að dæma nýtur hún sólarinnar til hins ýtrasta og er dugleg að deila bikinímyndum af sér á Instagram-reikningi sínum, en þar er hún með 11 milljónir fylgjenda. 

Anastasia birti myndaröð á miðlinum þar sem hún líkist óneitanlega vinkonu sinni, raunveruleikastjörnunni Kylie Jenner. Þær þykja afar líkar og eru oft kallaðar „tvífarar“ eða „tvíburar“ þegar þær deila myndum af sér saman á samfélagsmiðlum. 

Talar opinskátt um lýtaaðgerðir sínar

Kylie og Anastasia hafa verið vinkonur frá því þær voru í menntaskóla, en þær eru óneitanlega líkar í dag enda hefur útlit þeirra beggja breyst töluvert frá því þær kynntust fyrst. Þó Kylie hafi aldrei tjáð sig um lýtaaðgerðir opnaði Anastasia sig um lýtaaðgerðir sínar í hlaðvarpinu Call Her Daddy í apríl. 

„Ég hef ekki fengið mér sílikon í rassinn. Eina sílikonið sem ég er með er í brjóstunum á mér,“ sagði Anastasia í hlaðvarpinu. „En ég er ekki að segja að ég hafi ekki látið gera aðra hluti og hafi ekki, þú veist, fært ýmislegt til,“ bætti hún við. 

Anastasiu þykir miklir fordómar vera fyrir lýtalækningum, en viðurkennir að hún hafi látið leysa upp hluta af þeim fyllingarefnum sem hún hafði fengið sér áður til þess að ná fram náttúrulegra útliti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert