Play kynnir nýjan áfangastað

Flugfélagið Play hefur áætlunarflug til Varsjár í Póllandi næsta vor.
Flugfélagið Play hefur áætlunarflug til Varsjár í Póllandi næsta vor. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarflugi til Varsjár, höfuðborgar Póllands. Fyrsta flugið verður 3. apríl 2023 en flogið verður tvisvar í viku fram til loka október 2023.

Varsjá er annáluð fyrir fegurð og frumleika en unnendur verslunar, matar og næturlífs muna finna þar allt sem hugurinn girnist. Þá er arkitektúr borgarinnar og saga hennar merk, enda hefur hún alið af sér afar framúrskarandi borgara, þar á meðal tónskáldið Frédéric Chopin en flugvöllurinn í Varsjá er einmitt nefndur eftir honum.

„Þetta er spennandi skref sem við tökum hjá Play með því að fljúga til Varsjár. Þetta er borg sem lætur engan ósnortinn og ég er sannfærður um að hún mun ekki aðeins höfða til þeirra rúmlega 20 þúsund Pólverja sem búa á Íslandi heldur einnig Íslendinga sjálfra. Þetta er fimmti nýi áfangastaðurinn sem við kynnum á skömmum tíma sem byggir undir metnaðarfullt leiðakerfi sem við munum bjóða upp á árið 2023,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert