Play valið besta nýja flugfélagið

Birgit Jónsson forstjóri tók við verðlaununum í Gíbraltar í gær.
Birgit Jónsson forstjóri tók við verðlaununum í Gíbraltar í gær.

Play hefur verið valið besta nýja flugfélagið (e. start-up of the year) af CAPA (Center for Aviation) sem eru alþjóðleg samtökum flugmál. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Gíbraltar í gærkvöldi en Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, er á staðnum og veitti þeim viðtöku.

Í rökstuðningi fyrir valinu segir að Play hafi skarað fram úr með viðskiptamódeli sínu sem byggist á að flytja farþega á milli Bandaríkjanna og Evrópu með hagkvæmilega staðsetta heimahöfn á Íslandi. Play hafi einnig sýnt ráðdeild með því að teygja sig ekki of langt, heldur halda sig við sparneytnar og hagkvæmar Airbus A320/321neo farþegaþotur sem henta einstaklega vel á þessum flugleggjum.

Í rökstuðningi CAPA segir einnig að stjórnendur Play hafi hafi staðsett fyrirtækið vel fyrir framtíðina með áherslu á stafrænar lausnir og sjálfbærni sem einum af grunnstoðum fyrirtækisins. Þá segir að Play hafi sýnt mikla seiglu á krefjandi tímum með því að skila rekstrarhagnaði á þriðja ársfjórðungi 2022.

„Að stofna nýtt flugfélag er nógu erfitt fyrir, en að gera það í svo krefjandi árferði með eins góðum árangri er einstakt. Það er því með mikilli ánægju sem CAPA hefur valið Play sem besta nýja flugfélagið árið 2022,“ segir Marco Navarria, talsmaður hjá CAPA, í tilkynningu frá CAPA.

„Það er afar ánægjulegt að fá svona alþjóðlega viðurkenningu á því sem við erum að gera og því frábæra starfi sem starfsfólk Play hefur unnið við krefjandi aðstæður. Þetta er gott veganesti til að fara með inn í komandi ár og veitir okkur aukinn kraft til að halda áfram að gera vel og halda áfram að byggja upp félag sem mun reynast ferðamönnum góður og hagkvæmur kostur,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, í tilkynningu frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert