Viltu vinna við að ferðast um Ísland?

Viltu vinna við að elta norðuljós?
Viltu vinna við að elta norðuljós? Pexels/Benjamin Suter

Ferðaskrifstofan Guide To Iceland, sem er í eigu sprotafyrirtækisins Travel Shift, leitar nú að efnisframleiðanda fyrir samfélagsmiðla sína. Starfið felur í sér að ferðast um Ísland og taka myndir og myndbönd fyrir samfélagsmiðla. https://www

Starfið er auglýst inni á vefnum Alfreð.is

Tilvonandi starfskraftur verður að vera fær á öllum helstu samfélagsmiðlunum, Instagram, TikTok, YouTube og Facebook. 

Þá þarf hann einnig að þekkja Ísland vel, ekki vera feiminn að vera fyrir framan myndavélina, veit hvernig á að skapa grípandi efni, er tilbúinn til að ferðast um allt Ísland og prófa eitt og annað. Síðast en ekki síst verður hann líka að vera góður í ensku. 

Umsóknarfrestur er til 19. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert