Sá heitasti á Netflix opnar bar

Lucien Laviscount er með mörg járn í eldinum.
Lucien Laviscount er með mörg járn í eldinum. AFP

Breski leikarinn Lucien Laviscount hefur slegið í gegn í Netflix-þáttunum Emily in Paris. Leikarinn gerir þó meira en að heilla heimsbyggðina í sjónvarpsþáttunum því nýverið opnaði hann nýjan bar í London. 

Nýi barinn heitir The Wealthy Bagger og er í Kensal Rise í Norðvestur-London. Með Laviscount í liði er veitingamaðurinn Zac Lichman en þeir ráku einnig bar saman sem var lokað í kórónuveirufaraldrinum. Leikarinn segir í viðtali við Forbes að þeir hafi lært af reynslunni og það nýtist vel. 

Engar skítsæmilegar franskar og vondur breskur hamborgari er í boði á staðnum. Lögð er áhersla á matargerð frá allri Asíu sem og kokteilagerð. Gareth Drew er yfirkokkur á staðnum en hann hefur meðal annars unnið á hinum heimsfrægu stöðum Nobu í London og Buddah Bar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert