Með báðum kærustunum í fríi

David Haye á tvær kærustur. Þeim líður mjög vel saman.
David Haye á tvær kærustur. Þeim líður mjög vel saman. Skjáskot/Instagram

Fyrrverandi hnefaleikakappinn David Haye hefur upplýst um það að vera í fjölkæru sambandi með söngkonunni Unu Healy og fyrirsætunni Sian Osborne. Þau hófu árið með ferðalagi til Marokkó og nutu lífsins fáklædd við sundlaugarbakkann.

Haye hefur sett sér góð markmið fyrir nýja árið. Á samfélagsmiðlinum Instagram segist Haye ætla í ár að umkringja sig skilningsríku fólki sem tekur honum eins og hann er. Kærasta hans Una Healy tekur í sama streng á sínum miðli og segist vera að hefja árið á mjög þægilegum stað í lífinu.

Fríið í sólinni hefur lagst vel í hnefaleikakappann en hann skrifaði færslu um að hafa fengið 90 mínútna nudd frá fjórum höndum og lét fylgja blikkandi broskall með færslunni. 

View this post on Instagram

A post shared by David Haye (@davidhaye)

View this post on Instagram

A post shared by Una Healy (@unahealy)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert