Icelandair kynnir nýjan áfangastað

Icelandair flýgur til Krítar í sumar.
Icelandair flýgur til Krítar í sumar. Ljósmynd/Icelandair

Icelandair tilkynnir í dag Krít á Grikklandi sem nýjan áfangastað í leiðakerfi sínu. Flogið verður einu sinni í viku, á föstudögum, frá Keflavíkurflugvelli til Chania flugvallar á Krít.

Icelandair hefur áður flogið í leiguflugi til Krítar en nú er í fyrsta sinn boðið upp á áætlunarflug þangað.

Fyrsta flug er 26. maí 2023 og flogið verður út september. Flugið er um 5 klukkustundir og 45 mínútur.

Krít er stærst grísku eyjanna og fimmta stærsta eyjan í Miðjarðarhafinu. Þar er að finna merkilegar fornminjar, fallegar strendur, tilkomumikið fjallalandslag og ríkulega matarmenningu.

„Krít er Íslendingum kunnur áfangastaður og þangað er margt að sækja, hvort sem er miðjarðarhafsstrendur, náttúra, saga eða grísk matargerð. Það er mjög spennandi að bæta Krít inn í alþjóðlega leiðakerfið okkar sem nær nú til 47 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Eftir samþættingu Icelandair og ferðaskrifstofunnar Vita hafa skapast spennandi tækifæri eins og þessi til þess að efla leiðakerfið okkar og auka þjónustuna við viðskiptavini,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert