Vöruflutningavél lenti næstum því á farþegavél

Aðeins 308 metrar voru á milli vélanna þegar vél FedEx …
Aðeins 308 metrar voru á milli vélanna þegar vél FedEx flaug yfir Southwest. Skjáskot/FlightRadar24

Litlu mátti muna að illa færi á Austin-Bergstrom-flugvellinum í Austin í Texas á laugardag þegar vöruflutningavél lenti næstum því á farþegavél Southwest sem var á leið í loftið.

Flugumferðarstjóri í Austin gaf þá vöruflutningavél FedEx grænt ljós á að lenda á brautinni en þar var Southwest-vélin að búa sig undir flugtak.

Aðeins munaði 308 metrum á vélunum þegar vél FedEx flaug inn til lendingar yfir farþegavélinni. Flugstjórar vöruflutningavélarinnar voru þó vakandi yfir ástandinu og hættu snarlega við lendingu þegar þeir sáu í hvað stefndi. Hringsólaði vélin í nokkrar mínútur og lenti 12 mínútum seinna þegar vél Southwest var farin í loftið.

Flugmálastjórn Bandaríkjanna hefur gefið út tilkynningu um atvikið, en það er þó enn til rannsóknar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert