6 mistök sem ferðamenn gera á Marbella

Ljósmynd/Unsplash/Ricardo Gomez Angel

Hinn 24 ára gamli Jorge Honojosa Mena er búsettur í Bretlandi, en hann er upprunalega frá Madríd á Spáni og hefur heimsótt Marbella á Costa del Sol á hverju sumri frá því hann var ungur.

Mena segist hafa orðið vitni að sex mistökum ferðamanna á Marbella, en hann telur að ferðalangar upplifi Marbella á allt annan og betri máta ef þeir ná að forðast þessi mistök. 

1. Bóka hótel langt frá miðbænum

Það getur verið freistandi að bóka ódýrari gistingu lengra frá miðbænum, en Mena mælir hins vegar alls ekki með því. „Ekki panta þér hótel í útjaðri bæjarins, því almenningssamgöngur eru erfiðar,“ segir hann í samtali við The Sun

Þá hættir strætó að keyra klukkan 23:00 á kvöldin sem gerir ferðalöngum sem vilja borða kvöldmat seint eða kíkja út á lífið erfitt fyrir. Mena segir leigubíla á Marbella geta verið ansi dýra og því séu ferðamenn betur settir ef þeir bóka sig í göngufæri frá miðbænum.

2. Fá sér paella í kvöldmat

„Á Spáni fáum við okkur paella í hádeginu á meðan flestir ferðamenn panta það í kvöldmat. Í kvöldmatinn fáum við okkur eitthvað léttara eins og steiktan fisk,“ útskýrir Mena. 

Hann og fjölskylda hans forðast að borða á veitingastöðum þar sem mikið er af ferðamönnum. Fyrir ferðamenn í leit að ekta spænskum kvöldverði mælir Mena með því að borða á veitingastöðum þar sem matseðlarnir eru ekki skrifaðir á ensku.

Mena mælir með því að ferðalangar gæði sér á paella …
Mena mælir með því að ferðalangar gæði sér á paella í hádeginu. Ljósmynd/Unsplash/Franzi Meyer

3. Að versla á ströndinni

„Aldrei kaupa sólarvörn í verslunum sem þú sérð á ströndinni því húner alltaf of dýr og jafnvel léleg. Þú munt líka vera rukkaður um of mikla peninga fyrir flip-flop skó sem eru líka lélegir,“ segir Mena. 

4. Klæða sig sem Flamenco-dansari

Ef þú vilt klæða þig eins og heimamaður mælir Mena með því að forðast það að vera í Flamenco-kjólum. „Fjölskyldur með ung börn ættu að forðast að klæða litlu börnin sín í Flamenco-kjól. Heimamenn klæðast þeim venjulega ekki til að ganga um í, við notum þá bara fyrir hátíðirnar,“ segir hann.

5. Að drekka í hádegissólinni

Mena segist gjarnan sjá ferðamenn drekka mikið þegar það er virkilega heitt og sólríkt. „Spánverjar fara frekar á ströndina snemma á morgnana og í hádegismat á milli klukkan 13:00 og 17:00 á meðan ferðamenn sitja og drekka í mesta hitanum í hádeginu,“ segir Mena.

Ljósmynd/Pexels/Armin Rimoldi

6. Hótel þar sem allt er innifalið

„Forðastu hótel þar sem allt er innifalið, maturinn í bænum er miklu betri og það þýðir líka að þú getur borðað eins og heimamaður,“ segir Mena og mælir með því að fá sér paella í hádeginu og tortillu í kvöldmat.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert