TikTok-stjarna strandaglópur á Ítalíu

Skjáskot/Instagram

TikTok-stjarnan Alix Earle er stödd á þriggja vikna ferðalagi um Evrópu með vinkonum sínum, en þær urðu strandaglópar á Ítalíu eftir meint svindl á þekktum hótelbókunarvef. 

Vinkonurnar höfðu bókað glæsilega villu í Positano, en þegar þær komu á staðinn var hún ekki til.

„Við erum strandaglópar á Ítalíu. Húsið sem við áttum að vera í er ekki til. Bílaþjónustu okkar var aflýst. Það er miðnætti. Við vitum bókstaflega ekki hvert við eigum að fara. Stelpuferðin tók stakkaskiptum,“ sagði Earle í TikTok-myndskeiði sem hún birti. 

Í öðru myndskeiði sagðist Earle hafa bókað villuna í gegnum bókunarvef Booking.com, en hópurinn var að koma frá Ibiza á Spáni þar sem hann hafði notið næturlífsins til hins ítrasta. 

Stuttu síðar birti Earle enn annað myndskeið þar sem vinkonurnar voru komnar með gistingu. „Við fundum stað til að gista á yfir nóttina eftir að „fallega villan“ okkar á Ítalíu var ekki til,“ skrifaði hún. 

@alixearle Heres the storytime … stay tuned for updates 🤣🫶🏼✈️ #positano #girlstrip #italy ♬ Young Folks - Shindig Society
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert