PLAY flýgur daglega

Play flýgur daglega til Amsterdam í vetur.
Play flýgur daglega til Amsterdam í vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugfélagið PLAY er nú búið að setja daglegar flugferðir til Amsterdam næsta vetur í sölu. PLAY fór í sitt fyrsta áætlunarflug til Amsterdam í gær og verður með áætlunarferðir fimm sinnum í viku til borgarinnar í sumar. Þann 29. október tekur við áætlun með daglegum ferðum sem falla vel að tengiflugi félagsins til áfangastaða í Norður-Ameríku.

Schiphol-flugvöllur er ein helsta samgöngumiðstöð Evrópu og því styrkja þessar daglegu ferðir næsta vetur frá Amsterdam leiðakerfi PLAY gríðarlega mikið að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá flugfélaginu. Það fer ekki aðeins fjöldi farþega í gegnum Schiphol-flugvöll því miklir vöruflutningar fara sömuleiðis um flugvöllinn. Það þýðir að möguleikar PLAY á að afla hliðartekna með vöruflugi aukast til muna.

„Flugfélög bíða í röðum eftir því að komast að á Schiphol-flugvelli og því er það einstakt afrek fyrir PLAY að fá þar lendingarleyfi og geta sett daglegt flug í sölu næsta vetur. Flugvöllurinn er sá fjórði stærsti í Evrópu og því mikilvæg viðbót í okkar leiðakerfi,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins PLAY. 

Flugrekstur Birgir Jónsson, forstjóri Play.
Flugrekstur Birgir Jónsson, forstjóri Play.

Flugfélagið tók á móti sinni tíundu farþegaþotu beint úr Airbus-verksmiðjunni í Hamborg í síðustu viku. Þotan nefnist Airbus A321neo og tekur 214 farþega í sæti. PLAY státar af yngsta flugflota Evrópu, þar sem meðalaldur flotans er um 2 ár.

„Þessar öflugu og hagkvæmu vélar gera okkur kleift að reka leiðakerfið áfram hnökralaust og með einni þeirri mestu stundvísi sem gengur og gerist meðal flugfélaga sem PLAY ber sig saman við. Og með Amsterdam sem einn af hornsteinum leiðakerfisins næsta vetur er ekki annað hægt að segja en að það séu spennandi tímar fram undan hjá flugfélaginu PLAY,” segir Birgir Jónsson.

Hátt í fjörutíu áfangastaðir verða í leiðakerfi PLAY í ár og þar á meðal fimm áfangastaðir í Norður-Ameríku; New York, Washington DC, Boston og Baltimore í Bandaríkjunum og Toronto í Kanada. Í Evrópu er flogið til vinsælustu áfangastaða álfunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert