Bestu „vintage-verslanirnar“ í París

Skat Vintage.
Skat Vintage. Ljósmynd/Instagram

Það er ákveðin list að versla notuð föt og eru fjölmargir sem vita ekkert skemmtilegra, því slíkan fjársjóð er hægt að finna ef áhuginn og þolinmæðin eru fyrir hendi. Í borg tískunnar, París í Frakklandi, eru ótal margar verslanir og markaðir sem selja notuð föt, bæði lúxusvöru og ódýrari. Það eru þó nokkrar sem þykja standa upp úr. 

Skat Vintage

Glöggir átta sig á því að Skat kemur úr dönsku en verslunin Skat Vintage opnaði nýverið í Marais-hverfinu í París. Eigendur verslunarinnar eru par, hin danska Agnés Salto og frakkinn Mathias de Cevins. Fötin eru aðallega frá tíunda áratugnum og eru sérvalin af eigendunum. Skandinavísku áhrifin gætu heillað Íslendinga.

Heimilisfangið er 25 Rue Saint-Paul, 75004.

Skat Vintage.
Skat Vintage. Ljósmynd/Instagram

Thank God I'm a V.I.P. 

Þessi verslun er í raun keðja af þremur. Ein fyrir kvenfatnað, önnur fyrir heimilisvörur og önnur fyrir barnaföt. Eigandi verslunarinnar heitir Sylvie Chateigner sem raðar fötunum eftir lit. Þarna er hægt að finna föt frá árinu 1940 en einnig hinn fræga Alaïa þrönga kjól frá níunda áratugnum. Vert að heimsækja. 

Heimilisfangið er 12 Rue de Lancry, 75010.

Rauður pallíettukjóll frá Ninu Ricci.
Rauður pallíettukjóll frá Ninu Ricci. Ljósmynd/Thank God I'm A V.I.P.

Didier Ludot

The New York Times fjölluðu um Didier Ludot sem manninn sem bjó til vintage-tískuna sem er ekkert smá. Verslunin er staðsett í Palais Royale og er yfirleitt alltaf tekin fram yfir bestu búðirnar í París sem selja notuð föt. Verslunin er yfir fimmtíu ára gömul og margir hafa lýst henni sem tískusafni frekar en verslun. 

Heimilisfangið er 24 Gal de Montpensier, 75001.

Didier Ludot í París.
Didier Ludot í París. Ljósmynd/Instagram

Takk Paris

Aðeins öðruvísi vintage-verslun sem áhrifavaldarnir elska. Það er varla hægt að kalla verslunina vintage-verslun heldur frekar verslun sem selur notuð föt því fötin þarna eru minna en fimm ára gömul. Þetta er meira fyrir þá sem vilja ekki versla sér ný föt vegna offramleiðslunnar sem á sér stað í fataheiminum og hægt að gera mjög góð kaup þarna á fötum í nánast fullkomnu ástandi. „Nýjar“ vörur í hverrri viku!

Heimilisfangið er 11 Rue Oberkampf, 75011.

Takk Paris.
Takk Paris. Ljósmynd/Instagram

Palace Callas

Verslun í eigu mæðgna sem leggja áherslu á fatnað frá sjötta til tíunda áratugnum. Verslunin er lítil en þarna er hægt að finna fjársjóði. Helstu viðskiptavinir Palace Callas eru nýlega þekktar dívur, kvenkyns forstjórar og borgarstelpur eins og Florence kallar þær. Í versluninni minna fötin á Sex & The City og Gossip Girl, þáttaraðirnar sem urðu svo vinsælar og gerðust í New York. Verslunin er staðsett í Marais-hverfinu.

Heimilisfang verslunarinnar er 16 Rue du Pont Louis-Philippe, 75004.

Palace Callas.
Palace Callas. Ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert