„Við lögðum af stað sem tvær vinkonur með bakpoka“

Ísabella Ósk J. Morthens og Birna Mjöll Björgvinsdóttir segja frá …
Ísabella Ósk J. Morthens og Birna Mjöll Björgvinsdóttir segja frá heimsreisu, þar sem þær áætla að fara hringinn í kringum jörðina á fjórum mánuðum. Ljósmynd/Aðsend

Þær tvítugu stöllur Birna Mjöll Björgvinsdóttir og Ísabella Ósk J. Morthens eru staddar í Balí í Indónesíu þegar þær gefa sér smá tíma til að svara spurningum um heimsreisuna, Ljóskureisuna.

Um þessar mundir er reisan hálfnuð en þær hafa áætlað að fara hringinn í kringum jörðina á fjórum mánuðum. Þær lögðu af stað 18. febrúar og stefna á heimkomu 7. júní. Til að skipuleggja ferðina fengu þær aðstoð frá ferðaskrifstofunni Kilroy, sem sérhæfir sig í slíkum ferðum, þrátt fyrir að hafa skipulagt hana mest megnis sjálfar.

„Við eyddum ótal klukkustundum í að rannsaka menningu, trúarbrögð og sérstaka staði sem við vildum upplifa.“

Þær eru afar kátar með ákvörðunina um að fara í …
Þær eru afar kátar með ákvörðunina um að fara í heimsreisu núna. Ljósmynd/Aðsend

Vaxandi fylgjendafjöldi

„Þegar við tókum ákvörðunina [um að fara] hófst mikill undirbúningur sem tók í raun heilt ár. Til að fjármagna ferðina unnum við báðar fullt starf eftir útskrift.“

Birna og Ísabella kynntust á fyrsta árinu í Verzlunarskóla Íslands og urðu strax bestu vinkonur. Þær segjast hafa verið á hálfgerðum krossgötum eftir útskrift úr skólanum, vorið 2024, um hvort halda ætti beint í háskólanám eða láta villta drauma rætast.

Hér er Birna Mjöll, en þær stöllur hafa m.a. farið …
Hér er Birna Mjöll, en þær stöllur hafa m.a. farið á brimbrettanámskeið. Ljósmynd/Aðsend

Vitaskuld varð síðari kosturinn fyrir valinu.

„Við þurftum að skipuleggja ótal hluti s.s. bólusetningar, vegabréfsáritanir, bóka hótel, ferjur, lestir og kynna okkur margt. Við vildum ekki bara ferðast heldur einnig kynnast löndunum, menningunni og fólkinu.“

Áður en lagt var í hann stofnuðu þær Instagram-aðganginn Ljóskureisuna, svo fjölskylda og vinir gætu fylgst með ævintýrunum, en þær segja fjölda fólks hafa bæst í fylgjendahópinn bæði á Instagram og TikTok.

Fyrir ferðalagið segjast þær Birna og Ísabella ekki einu sinni …
Fyrir ferðalagið segjast þær Birna og Ísabella ekki einu sinni tekið millilandaflug. Ljósmynd/Aðsend

Fara út fyrir þægindarammann

„Hingað til höfum við ferðast til Dúbaí, Víetnam, Taílands og Singapúr, og erum núna staddar á Balí. Eftir Balí förum við til Ástralíu, þar sem við munum ferðast niður austurströndina.”

Þá er förinni heitið til Nýja-Sjálands en þar ætla þær að leigja húsbíl, keyra um og upplifa náttúru landsins.

Þegar blaðamaður nær tali af Ísabellu og Birnu eru þær …
Þegar blaðamaður nær tali af Ísabellu og Birnu eru þær staddar á Balí. Ljósmynd/Aðsend

„Að lokum munum við dvelja á Cooks-eyjum og Havaí, þar sem við njótum eyjalífsins áður en við endum ferðalagið í New York og fljúgum heim til Íslands.“

Á ferðalagi sínu hafa þær gert ýmislegt til að fara út fyrir þægindarammann eins og þær orða það; tekið köfunarréttindi á Taílandi, farið á brimbrettanámskeið á Balí og þær stefna á fallhlífastökk í Ástralíu og teygjustökk á Nýja-Sjálandi.

Inntar eftir hvort þær hafi gert eitthvað þessu líkt áður svara þær neitandi. „Þetta er í fyrsta skipti sem við förum í svona stórt ævintýri.“ Þær segjast ekki einu sinni hafa tekið millilandaflug fyrir ferðalagið. 

„Við héldum að við værum bara að fara að sjá …
„Við héldum að við værum bara að fara að sjá heiminn en í raun er heimurinn líka að kenna okkur að sjá lífið í nýju ljósi.“ Ljósmynd/Aðsend
„Við viljum ekki bara skoða ferðamannastaði heldur líka kynnast menningu …
„Við viljum ekki bara skoða ferðamannastaði heldur líka kynnast menningu hvers lands.“ Ljósmynd/Aðsend

Teygju- og fallhlífastökk

Markmið Birnu og Ísabellu með ferðinni var að blanda saman ævintýrum, náttúruupplifun, kynnast ólíkri menningu og stunda sjálfsrækt.

„Áður en við lögðum af stað bjuggum við til „bucket-lista“ og við erum smátt og smátt að vinna okkur niður listann.“

Á listanum voru afþreyingar á borð við að kafa, fara á brimbretti og prófa teygju- og fallhlífastökk. Þá hafa þær þegar farið á matreiðslunámskeið, í göngu- og bátsferðir og heimsótt söfn.

„Við viljum ekki bara skoða ferðamannastaði heldur líka kynnast menningu hvers lands. Við gistum aðallega á hostelum þar sem við kynnumst ótrúlega mörgum ferðalöngum alls staðar að úr heiminum.“

Suðrænar og seiðandi vinkonur sem njóta hitans og afslöppunarinnar.
Suðrænar og seiðandi vinkonur sem njóta hitans og afslöppunarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Víkkar sjóndeildarhringinn

„Við lögðum af stað sem tvær vinkonur með bakpoka, en komum heim ríkari af reynslu, þroska og ævintýrum sem munu fylgja okkur alla ævi.“

Báðar segja þær heimsreisuna hafa víkkað sjóndeildarhringinn. Á meðal þess fallega sem þær hafi upplifað hafi þær einnig séð fólk lifa við mjög erfiðar aðstæður. Slík upplifun dýpki sýnina á lífið og kenni þeim að vera þakklátar fyrir það sem þær hafa.

Eitt af því sem vinkonurnar prófuð var köfunarnámskeið.
Eitt af því sem vinkonurnar prófuð var köfunarnámskeið. Ljósmynd/Aðsend

þá hafi ævintýrin ekki alltaf verið auðveld en Birna og Ísabella hafa lent í veseni með flugmiða, bókað rangar dagsetningar í gistingu, bókað ferju í mars í stað febrúar og fengið matareitrun. Allt sé þetta þó partur af upplifuninni og sé ekki annað en þroskandi og lærdómsrík reynsla.

Eflaust sé þó mikilvægasta reynslan sú að þær læra að treysta á sig sjálfar. Þannig eykst sjálfstraustið þegar þarf að bjarga sér í alls kyns óvæntum aðstæðum, segja þær.

„Við héldum að við værum bara að fara að sjá heiminn en í raun er heimurinn líka að kenna okkur að sjá lífið í nýju ljósi. Við vissum að ef við gerðum þetta ekki núna, þá myndum við kannski aldrei gefa okkur þetta tækifæri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert