Margir eiga sér svokallaðan laupalista, það er lista sem inniheldur staði og hluti sem þú verður að sjá og upplifa áður en þú deyrð.
Ferðavefurinn Big 7 Travel birti nýverið lista yfir þá staði í heiminum sem allir þurfa að heimsækja áður en þeir deyja.
Ein af fegurstu náttúruperlum Íslands trónir í toppsæti listans en 30 spennandi og töfrandi staðir urðu fyrir valinu.
Sólheimajökull, skriðjökull sem skríður frá norðvestanverðum Mýrdalsjökli, er í fyrsta sæti á lista Big 7 Travel. Jökullinn er vinsæll viðkomustaður ferðamanna til að skoða fallegt umhverfi hans eða prófa jöklagöngu og/eða ísklifur.
Song-Köl í Kyrgyzstan er í 2. sæti, hellaborgin Petra í suðurhluta Jórdaníu í 3. sæti, Geirangerfjörður í Noregi í 4. sæti og Okavango Delta í Botswana í 5. sæti.
Hér má sjá listann í heild sinni: