Hituð einkasundlaug á besta stað á Tenerife

Blár himin og frískandi sundlaug.
Blár himin og frískandi sundlaug. Skjáskot/Airbnb

Eftir veturinn er yfirleitt mikil sólarþrá í Íslendingum og eflaust flestir farnir að huga að sumarfríum. Ef þú hyggst skella þér til uppáhaldseyjunnar, Tenerife, þá er um að gera að skoða þetta hús sem auglýst er til leigu á vefsíðunni AirBnb

Húsið er staðsett á Adeje sem er oft talinn besti hluti eyjarinnar til að njóta frísins. Húsinu fylgir upphituð einkasundlaug og skemmtilegt útisvæði. Á kvöldin má njóta lífsins og grilla úti í garði.

Tvö svefnherbergi eru í húsinu sem rúmar fjóra gesti. Húsið er innréttað á stílhreinan hátt og er hið snyrtilegasta. 

Þarna er hægt að sóla sig.
Þarna er hægt að sóla sig. Skjáskot/Airbnb
Útisvæði hússins er skemmtilegt.
Útisvæði hússins er skemmtilegt. Skjáskot/Airbnb
Húsið sjálft er stílhreint og mjög snyrtilegt.
Húsið sjálft er stílhreint og mjög snyrtilegt. Skjáskot/Airbnb
Suðræn stemning í húsinu.
Suðræn stemning í húsinu. Skjáskot/Airbnb
Létt eldamennska getur farið fram í eldhúsinu.
Létt eldamennska getur farið fram í eldhúsinu. Skjáskot/Airbnb
Tvö svefnherbergi eru í húsinu.
Tvö svefnherbergi eru í húsinu. Skjáskot/Airbnb
Fallegt baðherbergi.
Fallegt baðherbergi. Skjáskot/Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert