Lína og Gummi kíró í París um páskana

Lína Birgitta Sigurðardóttir og Guðmundur Birkir Pálmason eru í París, …
Lína Birgitta Sigurðardóttir og Guðmundur Birkir Pálmason eru í París, borginni sem þau trúlofuðu sig í árið 2022. Ljósmynd/Arnór Trausti

Lína Birgitta Sigurðardóttir, eigandi Define the Line, og Guðmundur Birkir Pálmason kírópraktor, betur þekktur sem Gummi kíró, eyða páskahátíðinni saman í París í Frakklandi. 

Lína birti myndir af þeim í borg ástarinnar í dag, en börn Guðmundar eru með í ferð. Að þessu sinni ákváðu þau að leigja íbúð á íbúðarhóteli, en hingað til hafa þau alltaf verið á hóteli. 

Lína og Gummi hafa oft heimsótt París saman, en þau trúlofuðu sig einmitt í borginni fyrir tæpum þremur árum síðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert