Örlögin leiddu þau saman í 5.400 metra hæð

Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson eru yfir sig ástfangin.
Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson eru yfir sig ástfangin. Ljósmynd/Aðsend

Ástarævintýri á Kilimanjaro hljómar eins og nafn á skáldsögu fremur en eitthvað sem eigi sér stoð í raunveruleikanum, en raunverulegt er það því Edith Gunnarsdóttir kynntist kærasta sínum, Elinas Jackson, á leiðinni upp á hæsta fjall Afríku, sem er 5.895 metrar á hæð.

„Árið 2022 reyndi ég að fá leiðsögumenn og ferðaskrifstofur til að setja saman ferð á Kilimanjaro fyrir mig og vini mína og fjölskyldu.“ Þegar það gekk ekki upp hnippti vinkona Edith í hana og benti henni á að hún gæti alveg skipulagt ferðina sjálf. 

Á góðri stund í Tansaníu.
Á góðri stund í Tansaníu. Ljósmynd/Aðsend

Í janúar 2023 fór hópurinn í ferðina sem Edith skipulagði frá A til Ö. Þegar út var komið tók við ferðaþjónustuaðili sem sá hópnum fyrir leiðsögu- og burðarmönnum, alls 42 einstaklingar fyrir þennan tólf manna hóp.

„Þeir bera allt, tjöld, dýnur, mat, gas o.s.frv.“ og bætir Edith við að maturinn í ferðinni hafi verið mjög góður. 

Á leiðinni á toppinn er settur einn leiðsögumaður á hvern einstakling úr hópnum sem fylgist með viðkomandi, ber bakpokann og gengur úr skugga um að allt sé í lagi. 

Á Kilimanjaro þar sem örlögin leiddu þau saman.
Á Kilimanjaro þar sem örlögin leiddu þau saman. Ljósmynd/Aðsend
Bæði leiðsegja þau gönguhópum vítt og breitt um landið á …
Bæði leiðsegja þau gönguhópum vítt og breitt um landið á vegum Ferðasetursins. Ljósmynd/Aðsend

Örlögin gripu í taumana

„Sá sem átti að fylgja mér þurfti að fara niður með einn úr hópnum þegar við vorum í 5.400 metra hæð og Elinas kemur í staðinn.“ Edith lýsir því hvernig örlögin hafi gripið í taumana, því ekki er nóg með að Elinas hafi þurft að koma í stað annars leiðsögumanns, heldur átti hann yfir höfuð ekki að vera í þessari ferð. 

Í 5.400 metra hæð hófst með þeim vinskapur sem síðan leiddi til ástarsambands. „Í svona göngu á sér stað andleg hreinsun. Við náum mikilli tengingu þarna uppi á tindinum enda lífsgildi okkar svipuð.“

Hún segir samskiptin þó einungis hafa verið á vinalegum nótum í fyrstu.

„Í apríl sama ár býður hann mér í heimsókn,“ en Elinas er fæddur og uppalinn í Tansaníu og var á þessum tíma búinn að vera í fjallabransanum í þrettán ár. „Hann kemur frá góðri fjölskyldu, móðir hans er kennari, faðir hans er bóndi og systur hans eru hjúkrunarfræðingar og kennarar. Hann á stórt land, þar sem hann ræktar kaffi, sólblóm, hunang og maís þegar hann er ekki uppi á fjöllum.“ 

Og þarna í apríl 2023 ákváðu þau að fara saman í ferðaþjónustu.  

Elinas og Edith eru ákaflega samstillt en afar ólíkir persónuleikar, …
Elinas og Edith eru ákaflega samstillt en afar ólíkir persónuleikar, líkt og hún segir frá. Ljósmynd/Aðsend
Um þessar mundir eru Elinas og Edith að útvíkka starfsemina …
Um þessar mundir eru Elinas og Edith að útvíkka starfsemina í ferðaþjónustu og ætla að bjóða erlendum sem innlendum upp á safaríferðir í Afríku. Ljósmynd/Aðsend

Frá Fimmvörðuhálsi til Kilimanjaro

Fjallabakterían hófst þegar Edith fór ásamt saumaklúbbnum sínum og móður yfir Fimmvörðuhálsinn 2008, sem varð til þess að þær mæðgur fóru að stunda fjallgöngur af kappi.

Þær gengu saman á alla helstu tinda hérlendis og árið 2013 skráði Edith sig í hópinn 52 fjöll hjá Ferðafélagi Íslands. Í þeim gönguhóp kynntist hún konu sem sagði henni frá Kilimanjaro en sú frásögn virkaði eins og fjarlægur draumur í huga Edithar.

Árið 2015 var Edith boðin vinna sem leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Íslands og fjallamennskan varð stór hluti af lífi hennar. 

„Árið 2018 stóð ég á tímamótum en þá ákvað ég að segja upp dagvinnu sem sérkennslustjóri og fara alfarið út í fjallamennsku. Þarna er ég einstæð móðir með tvö börn. Ég ákvað að gefa þessu eitt ár og sjá hvað myndi gerast. Þá opnaðist einhver gátt og það verður strax brjálað að gera.“ Auk þess starfaði Edith einnig sem jógakennari og var með meirapróf. 

Á sléttum Tansaníu.
Á sléttum Tansaníu. Ljósmynd/Aðsend
Hægt er að segja að þau uni sér best á …
Hægt er að segja að þau uni sér best á fjöllum í félagsskap hvor annars. Ljósmynd/Aðsend

Nýtt fyrirtæki og safaríferðir

Eftir að þau Edith og Elinas ákváðu að fara út í ferðaþjónustu sótti hún um ferðaskrifstofuleyfi sem hún fékk í maí 2023 og þá fór boltinn að rúlla. Fyrirtækið hennar, Ferðasetrið, fer með gönguhópa á fjöll vítt og breitt um landið en það kaupir einnig þjónustu af Elinas úti, sem gerir Afríkuferðirnar öruggari, líkt og Edith útskýrir.

Nú eru þau að víkka út reksturinn og ætla að fara að einblína meira á safaríferðir í gegnum nýtt fyrirtæki sem þau hafa stofnað saman. „Það er t.d. mjög vinsælt hjá fólki frá Norður-Ameríku að fara í safarí og auk íslenska markaðarins viljum við einnig herja á þann markað. Við munum opna dyrnar fyrir ódýrari ferðir til Tansaníu og jafnvel fyrir minni hópa, eins og frá Íslandi.“

Þann 28. apríl ætla þau einmitt að halda mynda- og kynningarkvöld fyrir þessar ferðir.

Ferðasetrið, fyrirtæki Edithar, hefur keypt þjónustu af Elinas í Tansaníu …
Ferðasetrið, fyrirtæki Edithar, hefur keypt þjónustu af Elinas í Tansaníu til að fara með íslenska gönguhópa til Afríku. Ljósmynd/Aðsend
„Ég hef rembst eins og rjúpa við staurinn við alls …
„Ég hef rembst eins og rjúpa við staurinn við alls konar verkefni í gegnum lífið, en allt er í flæði núna.“ Ljósmynd/Aðsend

Elinas og Edith eru í fjarbúð sem stendur en nota hvert tækifæri til að heimsækja hvort annað. Þau láta ekkert á sig fá. „Ég hef rembst eins og rjúpa við staurinn við alls konar verkefni í gegnum lífið, en allt er í flæði núna.“

Hún lýsir því hve vel þau vinni saman og hve samstillt ólík persónueinkenni þeirra séu, hún eins og fiðrildi og hann jarðtengdur.  

„Það er öll fjölskyldan búin að koma út og hitta hann og hann hefur komið hingað. Hann er þannig týpa að um leið og fólk er búið að hitta hann þá elska hann allir. Hann er svo jarðtengdur og góður.“ 

Tækifærin eru allt um kring og hjá nýja ferðaþjónustufyrirtækinu þeirra …
Tækifærin eru allt um kring og hjá nýja ferðaþjónustufyrirtækinu þeirra Edithar og Elinas verður boðið upp á ódýrari safaríferðir til Tansaníu, fyrir litla og stærri hópa. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert