Sturluð íbúð til leigu í Lissabon

Lissabon í Portúgal hefur vakið mikla athygli síðustu ár og hefur verið vinsæll áfangastaður. Í borginni færðu dásamlegan mat, sólskin og góða rassvöðva.

Þeir sem ætla sér að heimsækja borgina í náinni framtíð og vilja helst leigja sér íbúð í stað hótelherbergis ættu að hafa þessa íbúð sem er auglýst til leigu á vefsíðunni AirBnb í huga. Íbúðin er björt, dásamlega falleg, stílhrein og vel staðsett.

Íbúðin er í gömlu húsi í hjarta Baixa-hverfisins og er með einu svefnherbergi. Það komast hins vegar fjórir gestir fyrir því í stofunni er svefnsófi. Íbúðin væri því fullkomin fyrir fjögurra manna fjölskyldu. 

Dásamlegir gluggar hleypa birtunni inn.
Dásamlegir gluggar hleypa birtunni inn. Skjáskot/AirBnb
Morgunbollinn bragðast vel þarna.
Morgunbollinn bragðast vel þarna. Skjáskot/AirBnb
Stílhreint eldhús þar sem hægt er að elda það allra …
Stílhreint eldhús þar sem hægt er að elda það allra helsta. Skjáskot/AirBnb
Íbúðin er afar björt.
Íbúðin er afar björt. Skjáskot/AirBnb
Hvað er dásamlegra en að vakna og opna gluggana?
Hvað er dásamlegra en að vakna og opna gluggana? Skjáskot/AirBnb
Snyrtilegt baðherbergi.
Snyrtilegt baðherbergi. Skjáskot/AirBnb
Lítið útisvæði með grænum plöntum.
Lítið útisvæði með grænum plöntum. Skjáskot/AirBnb
Heillandi!
Heillandi! Skjáskot/AirBnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert