Birgitta Líf kíkti út á lífið í Kaupmannahöfn

Birgitta Líf brá sér í betri fötin.
Birgitta Líf brá sér í betri fötin. Skjáskot/Instagram

Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna, heimsborgari og markaðsstjóri World Class, eyddi helginni í Kaupmannahöfn í góðum félagsskap.

Samfélagsmiðlastjarnan flaug rakleitt úr sólinni á Spáni þar sem hún var í fríi ásamt syni sínum, hinum ársgamla Birni Boða, og fjölskyldu, yfir í blíðviðrið í dönsku höfuðborginni þar sem hún spásseraði um götur borgarinnar ásamt góðvinkonum sínum.

Birgitta Líf gaf innsýn í vinkonuhelgina á Instagram-síðu sinni og eins og sjá má á myndunum þá er hún ansi rík af góðum vinkonum.

„Vinkonuhelgi í CPH,“ skrifaði hún við myndaseríuna.

Fyrir helgi var greint frá því að Birgitta Líf og sjómaðurinn Enok Vatnar Jónsson væru hætt saman eftir þriggja ára samband.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert