Heilræði fyrir söndugar tær

Allir elska góðar strendur.
Allir elska góðar strendur. Getty images

Sandur á milli tánna er ekki öllum að skapi og mörgum finnst óþægilegt að geta ekki skolað fæturna áður en haldið er af stað af ströndinni.

Ferðamaður hefur fundið ráð við þessu hvimleiða vandamáli en í myndbandi sem birt var á Instagram segir Liz Richards (@dailyorginalvids) frá því að hún komi alltaf með plastpoka á ströndina. 

Áður en hún hyggst fara af ströndinni, fer hún að sjónum og fyllir pokann af vatni. Svo stígur hún í hann áður en hún fer í skóna sína. Þannig getur hún haldið áfram með daginn sinn með hreina fætur.

Mörgum hefur þótt þessi hugmynd góð en einn fylgjandi bætti þó um betur og stakk upp á að fólk notaði líka barnapúður en þá loðir enn minna við fæturna. Aðrir benda hins vegar á mikilvægi þess að slaka á í fríinu sínu og hætta að pæla í sandi á milli tánna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert