Hefurðu áhuga á að gerast ferðaþjónustubóndi?

Sérstaklega skemmtilega hannað bóhem-einbýli við Selfoss á 5,5 hektara einkalóð …
Sérstaklega skemmtilega hannað bóhem-einbýli við Selfoss á 5,5 hektara einkalóð með fjórum heilsárshúsum sem eru leigð út til ferðamanna. Samsett mynd/Eignaland

Icelandic Cottages eru fjögur heilsárshús sem eru í Hraunmörk, skammt fyrir utan Selfoss. Húsin eru nú til sölu, ásamt einbýlishúsi á 5,5 hektara einkalóð, líkt og fram kemur á fasteignavef mbl.is. Svo nú er tækifæri fyrir hvern þann sem hefur áhuga að gerast ferðaþjónustubóndi.

Húsin eru í um 2,3 kílómetra fjarlægð frá Þjóðvegi 1. Einbýlishúsið er 167 fm, en því fylgir 12 fm gestahús og þvottahús sem er 24 fm.

Heilsárshúsin fjögur eru 73 fm hvert og kemur fram að hægt sé að bæta við byggingum á lóðinni.

Gistihúsin eru timburhús, björt og rúmgóð, með stórum gluggum. Úr húsunum er útsýni í allar áttir og skiptast þau í þrjú svefnherbergi, samliggjandi stofu og eldhús og baðherbergi. Rafmagnsofnar eru í húsunum en varmadælu var komið fyrir síðasta sumar svo hægt sé að hita húsin árið um kring.

Veröndin við gistihúsin er stór og fylgja húsgögn og útigrill. Bílastæði eru við öll húsin. 

Rekstrarfélagið Icelandic Cottages er einnig til sölu en það hefur öll tilskilin leyfi til ferðaþjónustu. Bókunarstaða félagsins fyrir árið 2025 lofar mjög góðu.

Einbýlishúsið sjálft er afar glæsilegt timburhús á tveimur hæðum sem skiptist í fjögur svefnherbergi, samliggjandi stofu og borðstofu og eldhús, baðherbergi og skemmtilegan garðskála. Á garðskálanum eru vandaðar rennihurðir sem hægt er að opna alveg á góðviðrisdögum.

Við verönd einbýlishússins stendur gestahús á tveimur hæðum, risið er nýtt sem svefnloft en í aðalrýminu eru 24 fm þvottahús með iðnaðarþvottavél og þurrkara, geymslu fyrir lín og öðru sem þarf til reksturs gistihúsa.

Hægt er að taka við rekstrinum frá og með 1. júní 2025. Tilboð óskast í eignina.

Nánari upplýsingar á: fasteignavef mbl.is

Suðurlandið hefur löngum verið einn vinsælasti landshluti fyrir ferðamenn að heimsækja. Þar eru ófáar náttúruperlurnar og mikil ferðaþjónusta er á svæðinu sem heldur utan um spennandi afþreyingu fyrir ferðamenn. 

Á heimasíðu Iceland Cottages er m.a. bent á kajakferðir, sund á Selfossi, golf, en mikið er um skemmtilega golfvelli steinsnar frá eins og í Hveragerði eða Öndverðarnesi, og reiðhjólaferðir.

Einbýlishúsið við Hraunmörk er 167 fm og stendur á 5,5 …
Einbýlishúsið við Hraunmörk er 167 fm og stendur á 5,5 hektara einkalóð. Ljósmynd/Eignaland
Á efri hæð er að finna þrjú herbergi auk opins …
Á efri hæð er að finna þrjú herbergi auk opins rýmis með fallegu útsýni. Ljósmynd/Eignaland
Opið er á milli stofu borðstofu og eldhúss.
Opið er á milli stofu borðstofu og eldhúss. Ljósmynd/Eignaland
Húsið er úr timbri og er byggingarár þess 2006. Varmadælum …
Húsið er úr timbri og er byggingarár þess 2006. Varmadælum var komið fyrir til upphitunar. Ljósmynd/Eignaland
Eldhúsið er huggulegt með viðarinnréttingum.
Eldhúsið er huggulegt með viðarinnréttingum. Ljósmynd/Eignaland
Hugguleg setustofa er fyrir framan eldhúsið.
Hugguleg setustofa er fyrir framan eldhúsið. Ljósmynd/Eignaland
Úr eldhúsi og stofu er gengið yfir í garðskálann.
Úr eldhúsi og stofu er gengið yfir í garðskálann. Ljósmynd/Eignaland
Í garðskálanum er borðstofan og úr borðstofunni er útgengt á …
Í garðskálanum er borðstofan og úr borðstofunni er útgengt á veröndina. Ljósmynd/Eignaland
Eitt herbergjanna á efri hæð hússins.
Eitt herbergjanna á efri hæð hússins. Ljósmynd/Eignaland
Afar hugguleg stemning í bohem-stíl.
Afar hugguleg stemning í bohem-stíl. Ljósmynd/Eignaland
Hér er eitt gistihúsanna.
Hér er eitt gistihúsanna. Ljósmynd/Eignaland
Gistihúsin fjögur eru eins hönnuð, öll með opið á milli …
Gistihúsin fjögur eru eins hönnuð, öll með opið á milli stofu og eldhúss. Ljósmynd/Eignaland
Þrjú svefnherbergi eru í gistihúsunum.
Þrjú svefnherbergi eru í gistihúsunum. Ljósmynd/Eignaland
Herbergin í gistihúsunum eru ágætlega rúmgóð.
Herbergin í gistihúsunum eru ágætlega rúmgóð. Ljósmynd/Eignaland
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert