Upplifun sem segir sex

Í Nashville er hægt að kaupa sér Dolly Parton fatnað …
Í Nashville er hægt að kaupa sér Dolly Parton fatnað og hafa gaman. Samsett mynd

Nashville í Tenesse í Bandaríkjunum er ekki eins og nein önnur borg landsins. Gleðin drýpur úr hverju einasta andliti. Einhver myndi segja að heimsókn í miðbæ Nashville væri eins og að vera á leikjanámskeiði fyrir fullorðna.

Ólíkt öðrum borgum byrjar aðalfjörið ekki seint á kvöldin heldur um leið og fólk vaknar. Þá er eiginlega alveg gefið að á Broadway, sem er aðalgata miðbæjarins, sé kominn eins og einn trommari út í glugga og allavega ein sæt söngkona í kúrekastígvélum sem er að bíða eftir því að verða næsta Taylor Swift, en sú heimsfræga söngkona býr í Nashville.

Á dögunum hóf íslenska flugfélagið Icelandair beint flug til borgarinnar og af því tilefni fóru nokkrir blaðamenn á slóðir kántrýsins og kynntu sér það helsta. Gist var á The Bankers Alley Hotel Nashville sem er hluti af Hilton-hótelkeðjunni. Hótelið er snoturt, með þægilegu rúmi og góðum koddum. Það skiptir máli þegar fólk á að baki sjö og hálfs tíma flugferð með öllu tilheyrandi. Frá hótelinu var um sex mínútna gangur niður í „honky tonk“-stemninguna sem ríkir í miðbænum.

Það er algeng sjón að sjá hóp af fólki ferðast …
Það er algeng sjón að sjá hóp af fólki ferðast um miðbæinn líkt og fólk væri í gleðigöngu. mbl.is/Árni Sæberg

Nashville er þó ekki bara einhver tryllt djammborg því þar er hægt að njóta menningar, matar, drykkjar og alls þess sem góðar utanlandsferðir hafa upp á að bjóða. Þar eru skemmtileg hverfi með krúttlegum verslunum og veitingastöðum. En svo er líka hægt að örva hagkerfi Bandaríkjanna með ferðum í alvöru mall.

Á Broadway er iðandi mannlíf frá morgni til kvölds.
Á Broadway er iðandi mannlíf frá morgni til kvölds. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Þar má nefna The Mall At Green Hills sem er við 2126 Abbott Martin Rd í Nashville. Þar er að finna 130 verslanir í öllum verðflokkum, allt frá Chanel og Louis Vuitton niður í Zara og Sephora. Nordstrom og Macy's skarta sínu fegursta ásamt Dillard's, Kate Spade New York, Lululemon og J.Crew. Fólk sem elskar að kaupa varning í Ameríku ætti að geta skemmt sér vel í þessari verslunarmiðstöð og því betra að gefa sér góðan tíma. Í Nordstom eru til dæmis oft fataslár með fötum á niðursettu verði og því hægt að gera ágæt kaup ef þannig ber undir. Í The Mall At Green Hills er hægt að finna fatalínu söngkonunnar Dolly Parton fyrir Good American. Í línunni eru uppáhaldsflíkur söngkonunnar eins og gallbuxur með gimsteinum, gallaskyrtur og gallavesti svo eitthvað sé nefnt. Þegar fólk er búið að vera í nokkra daga í Nashville þá verður það alltaf betri og betri hugmynd að kaupa alla fatalínuna.

Fatalína Dolly Parton fyrir Good America er að gera góða …
Fatalína Dolly Parton fyrir Good America er að gera góða hluti í Nashville. Áður en þú veist af gætir þú verið búin að kaupa þér allar flíkurnar í línunni.

Fifth + Broadway

Við enda fjörugustu götunnar í Nashville, Broadway sjálfri, er að finna litla verslunarmiðstöð sem selur alls konar bráðnauðsynlegan óþarfa. Verslanir á borð við Nike, Sephora, Levi's, Carhartt, Free people og Ariat prýða verslunarmiðstöðina. Þar er líka mathöll og barir og ýmislegt fleira. Ef fólk vill kaupa alvöru kúrekastígvél þá er Ariat málið.

Við Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, og Svanhildur Hólm …
Við Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, sendiherra Íslands í Washington, fórum í Ariat og keyptum kúrekastígvél og mátuðum hatta. Ljósmynd/Sindri Sindrason

Opry Mills A Simon Center er fyrir fólk sem elskar útsölur og veit ekkert betra í lífinu en að gera góð kaup. Þetta er fólkið sem kann að meta amerísk fatamerki eins og GAP, J.Crew og Old Navy svo dæmi séu nefnd. Í verslunarmiðstöðinni er að finna J.Crew Factory, Michael Kors Outelt, Nike Factory, Old Navy Outlet, Ann Taylor Factory, Banana Republic Factory og GAP Factory svo einhverjar verslanir séu nefndar. Þar eru líka alls kyns veitingastaðir sem ekki er að finna á Íslandi eins og Burger King og Cheescake Factory.

Við Broadway verður ekki þverfótað fyrir glöðu fólki sem er …
Við Broadway verður ekki þverfótað fyrir glöðu fólki sem er komið til að skemmta sér. mbl.is/Árni Sæberg

12th South district

The Butter Milk Ranch er heillandi veitingastaður sem vert er að heimsækja. Um helgar myndast röð fyrir utan staðinn en hann er í hinu vinsæla 12th South district-hverfi sem iðar af mannlífi. Staðurinn er þekktur fyrir dögurð sinn þar sem egg og beikon eru í aðalhlutverki ásamt sírópi og smjöri. Þar eru líka girnilegar kökur sem vert er að smakka. Í sama hverfi er að finna verslanir sem selja notuð föt ásamt litlum sérverslunum eins og Hart sem selur fallega handgerða skartgripi sem setja svip sinn á allt.

Ef þú ætlar að kaupa þér kúrekastígvél þá er Nashville …
Ef þú ætlar að kaupa þér kúrekastígvél þá er Nashville staðurinn fyrir slík innkaup. mbl.is/Árni Sæberg

The Gulch

Það er ekki hægt að fara til Nashville nema heimsækja hverfið The Gulch. Þetta er nýtt hverfi sem leggur áherslu á að fólk geti gengið á milli staða en þar er að finna flotta veitingastaði og eftirsóknarverða stemningu. Hægt er að labba úr miðbænum, af Broadway yfir til The Gulch. Þar eru veitingastaðir eins og Calle Taco sem þykir góður, Biscuit Love sem rekinn er af hjónunum Karl og Sarah Worley sem vildu geta boðið upp á bestu smákökur í Nashville. Það er eiginlega ekki hægt að segja annað en að það hafi tekist hjá hjónunum.

Country Music Hall of Fame and Museum-safnið er sérlega skemmtilega …
Country Music Hall of Fame and Museum-safnið er sérlega skemmtilega uppsett. mbl.is/Árni Sæberg

Spennandi söfn

Í miðbænum er að finna áhugaverð söfn þar sem hægt er að fræðast um tónlistarfólk og heimsækja menningarviðburði.

Á Country Music Hall of Fame and Museum-safninu er saga sveitatónlistar rakin. Um er að ræða stærsta safn heims um sveitatónlist en þar er að finna sögur fólks í tónlistarheiminum, búninga, ljósmyndir og muni sem tengjast stærstu stjörnum heims á þessu sviði.

Á National Museum of African American Music-safninu er að finna tónlistarsögu í máli og myndum sem er áhugaverð. Þar er til sýnis fatnaður sem Nat King Cole, Whitney Houston og Lisa Lopes klæddust ásamt fjölda ljósmynda og myndskeiða sem markar sögu þessa vinsæla tónlistarhóps.

Ryman Auditorium

Það er ekki hægt að fara til Nashville án þess að heimsækja Ryman Auditorium sem er eitt elsta samkomuhús landsins. Fyrst var það notað fyrir trúarlegt starf en svo breyttist það í þekktan tónleikastað. Það eru þó ekki bara tónleikar í boði á Ryman Auditorium því staðurinn er vinsæll fyrir ýmsar skemmtanir eins og til dæmis uppistand. Leikarinn og uppistandarinn, Jim Jefferies, hóf til dæmis heimstúr sinn, Son of a Carpenter, í Nashville í apríl þar sem hann lét allt flakka. Ekkert af þessu var á félagsmiðlum því símabann var í salnum. Fram undan er þétt skemmtidagskrá í Ryman Auditorium og ætti fólk ekki að missa af þeim töfrum sem þar verða til á sviðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert