Ferðatími í lest getur verið helmingi styttri en í flugi

Frakkar hafa bannað flug á milli innanlandsáfangastaða þar sem lestarferð …
Frakkar hafa bannað flug á milli innanlandsáfangastaða þar sem lestarferð tekur 2,5 klukkustundir eða minna. Samsett mynd/christian tokoto/Bobby

Árið 2023 kynnti Frakkland bann á stuttu innanlandsflugi, þar sem járnbrautarvalkostur er undir 2,5 klukkustund. Bannið var innleitt til að draga úr kolefnislosun, ekki nóg með það heldur gæti það að skipta út flugvél fyrir lest verið ódýrari og fljótlegri kostur.

Trainline framkvæmdi rannsókn á fimm leiðum innanlands í Frakklandi sem leiddi í ljós að sumar ferðir á milli borga taka helmingi styttri tíma ef járnbrautarlestin er valin.

Með því að ferðast með lest í stað flugvélar getur heildarferðatíminn minnkað um allt að 2,5 klukkustundir samkvæmt Trainline. Þar spilar auðvitað inn í biðraðir við öryggisleitarhlið og annar biðtími sem fylgir flugferðum.

Það sem styttir heildarferðatímann í lest er að lestarstöðvar eru …
Það sem styttir heildarferðatímann í lest er að lestarstöðvar eru yfirleitt staðsettar í miðbænum. Erwan Hesry/Unsplash

Taka þarf meira í reikninginn

„Þótt lengd flugtímans virðist oft hagstæðari endurspeglar það ekki raunverulega lengd flugferðarinnar, með ferðinni til flugvallarins, biðinni um borð, öryggisleit og hugsanlegum töfum tengdum eftirliti og innritun,“ segir Trainline.

Flug frá Rennes til Parísar tekur þrjár klukkustundir og 21 mínútu en einn klukkutíma og 44 mínútur með lest. París til Lyon tekur þrjár klukkustundir og 37 mínútur með flugi en tvær klukkustundir og 11 mínútur með lest.

Þar fyrir utan eru lestarstöðvarnar yfirleitt í miðbæ áfangastaðarins sem styttir heildarferðatíma enn frekar. Flugmiðinn er gjarnan 1,8 sinnum dýrari en lestarmiðinn.

Niðurstöður rannsóknarinnar styðja einnig við ákvörðunina um að fella niður flugferðir á styttri leiðum, að undanskildum tengiflugum. Breytingarnar eru hluti af loftslagslögum Frakklands frá 2021, en í rannsókn Trainline kemur fram að kolefnisfótspor lesta getur verið 124 til 151 sinnum lægra en flugvéla.

Euro News

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert