Vanmetnustu ferðamannastaðir á heimsvísu

Flottir áfangastaðir!
Flottir áfangastaðir! Samsett

Að velja hinn fullkomna áfangastað fyrir fríið, hvort sem er fjölskyldufríið, vinkonufríið eða ástarfríið, getur oft og tíðum reynst erfitt, enda kjósa margir að halda sig bara við það sem þeir þekkja og er kunnuglegt. Sem dæmi má taka tíð ferðalög Íslendinga til Tenerife, en paradísareyjan hefur löngum laðað til sín íslenska ferðamenn, sem margir hverjir hafa tengst eyjunni sterkum kærleiksböndum og ferðast þangað ýmist einu sinni á ári eða oftar.

Þó að það sé gott og gilt að halda sig við kunnuglega valkosti getur einnig verið ánægjulegt að stíga út fyrir þægindarammann og kynna sér eitthvað nýtt og spennandi í þeirri von um að uppgötva annars konar paradís.

Til þess að auðvelda leitina hefur ferðatímaritið Condé Nast Traveller tekið saman lista yfir 19 vanmetna staði víðs vegar um heim sem vert er að heimsækja.

Byrjum í Bandaríkjunum

Níu áhugaverða staði í Bandaríkjunum er að finna á listanum, allt frá St. Michaels í Maryland til Santa Catalina í Kaliforníu.

Finger Lakes – New York

Finger Lakes-svæðið er sannkallaður falinn gimsteinn og í miklu uppáhaldi hjá borgarbúum New York, enda fullkominn staður til að slaka á og endurnæra sig, langt frá ysi og þysi Manhattan.

Á svæðinu má meðal annars finna fallega þjóðgarða og stöðuvötn.

Það væri ekki leiðinlegt að vera þarna!
Það væri ekki leiðinlegt að vera þarna! Unsplash/Jamie Melville

Voyageurs-þjóðgarðurinn - Minnesota

Voyageurs-þjóðgarðurinn er draumastaður þeirra sem leita skemmtunar og hvíldar í stórbrotinni náttúrufegurð. Þar er margt hægt að gera sér til skemmtunar og er svæðið kjörið til stjörnuskoðunar og kajaksiglinga.

Það er upplagt að fara í kajakferð.
Það er upplagt að fara í kajakferð. Unsplash/Tim Umphreys

Santa Catalina-eyja - Kalifornía

Aðeins steinsnar frá Los Angeles er að finna Santa Catalina-eyju sem er gjarnan kölluð „himnaríki á jörðu“.

Eyjan er fullkominn áfangastaður fyrir ævintýrafólk og sömuleiðis þá sem vilja bara liggja í sólinni og hafa það náðugt.

Aðdáendur einnar skærustu stjörnu gullaldar Hollywood, Marilyn Monroe, flykkjast einnig reglulega til eyjunnar til að virða fyrir sér fyrrverandi heimili stórtjörnunnar. Fyrir áhugasama þá stendur húsið við 310 Metropole Avenue.

Það er erfitt að láta sér leiðast á Santa Catalina-eyju.
Það er erfitt að láta sér leiðast á Santa Catalina-eyju. Unsplash/Concetta Huffa

St. Michaels – Maryland

Í aðeins nokkurra klukkustunda fjarlægð frá New York, Baltimore og Washington DC er að finna ferlega krúttlegan smábæ, St. Michaels, en í honum búa rétt rúmlega eitt þúsund manns og er svæðið því allt hið rólegasta.

Í bænum eru frábærir veitingastaðir, sætar verslanir og margir fallegir útsýnisstaðir sem horfa yfir Cheapeake-flóann.

Á St. Michaels er mikil siglingamenning.
Á St. Michaels er mikil siglingamenning. Unsplash/Marshall Patterson

Portland – Oregon

Það má með sanni segja að Portland í Oregon séu höfuðstöðvar hinna svokölluðu „hipstera“, en borgin er sögð vera „the most hipster of US cities”, sem segir ýmislegt.

Í Portland ríkir afslappað andrúmsloft og samfélagið er fjölbreytt og litríkt. Á nánast hverju götuhorni má finna skemmtilegar „vintage“-verslanir og gamaldags plötubúðir.

Það er afslappað andrúmsloft í Portland.
Það er afslappað andrúmsloft í Portland. Unsplash/Slava Keyzman

Condé Nast Traveller telur einnig upp Santa Fe í Nýju Mexíkó, Crystal River í Flórída, San Juan-eyjur í Washington og Isle Royale-þjóðgarðinn í Michigan.

Stígum nú út fyrir Bandaríkin

Tíu áhugaverða staði í Evrópu, Asíu og víðar er einnig að finna á listanum, allt frá Kósóvó í Suðaustur-Evrópu til Chiang Mai í Taílandi.

Kósóvó

Kósóvó, lítið landsvæði, um tíu sinnum smærra en Ísland að flatarmáli, á Balkanskaga í Suðaustur-Evrópu er á lista Condé Nast Traveller yfir bestu staðina til að heimsækja árið 2025, enda margt að sjá og upplifa.

Ferðamenn sem vilja fá nasasjón af sögu þessarar ungu þjóðar geta heimsótt þjóðminjasafnið; að því loknu er tilvalið að kanna götur Prizren og dást að byggingarlistinni sem og sögufrægum moskum og kirkjum.

Það er mikil fegurð í Kósóvó.
Það er mikil fegurð í Kósóvó. Unsplash/Mrika Selimi

Búdapest - Ungverjaland

Þessi tignarlega og glæsilega borg getur bæði hentað þeim sem vilja kynna sér gömlu Evrópu og læra meira um sögu hennar og þeim sem vilja versla og njóta menningar og lista.

Búdapest, sem hefur verið kölluð „hin raunverulega perla Evrópu“, hefur að geyma stórkostleg leikhús, hallir, fornar víggirðingar, stórbrotið þinghús og sögulega minnisvarða.

Búdapest er afar heillandi borg.
Búdapest er afar heillandi borg. Unsplash/Keszthelyi Timi

Buenos Aires - Argentína

Áhugafólk um dans á að sjálfsögðu að stíga inn í hinn heillandi heim tangósins. Höfuðborg Argentínu, Buenos Aires, er með fallegustu borgum Suður-Ameríku.

Borgin iðar af lífi og er óhætt að segja að Argentínubúar séu með fallegasta og hamingjusamasta fólki heims, enda fæddust þeir með dansgleðina í hjartanu.

Hver vill ekki stíga dans í Buenos Aires.
Hver vill ekki stíga dans í Buenos Aires. Unsplash/Lo Lindo

Chiang Mai - Taíland

Chiang Mai er heillandi ævintýrastaður á Taílandi sem hefur vaxið mikið í vinsældum síðustu ár.

Í borginni er afslappað andrúmsloft, falleg náttúra og ótrúlega vingjarnlegt fólk sem er allt að vilja gert. 

Það eru fullt af fallegum hofum í Chiang Mai.
Það eru fullt af fallegum hofum í Chiang Mai. Unsplash/Polina Kocheva

Condé Nast Traveller telur einnig upp Kaupmannahöfn, sem þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, Sardiníu á Ítalíu, eyríkið Máritíus, Kyoto í Japan, eldfjallaeyjunna Bora Bora og Quebec í Kanada. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert