Ódýr stúdíóíbúð til leigu í hjarta Portó

Tiltölulega ódýr gistimöguleiki í hjarta Portó.
Tiltölulega ódýr gistimöguleiki í hjarta Portó. Samsett mynd/Airbnb

Í hjarta næststærstu borgar Portúgal, Portó, er til leigu sæt stúdíóíbúð á Airbnb-síðunni. Íbúðin er í byggingu við Rua do Cativo og fullkomlega staðsett líkt og segir í lýsingunni.

Verð á nóttina er 82 dalir eða um 10.700 krónur á núverandi gengi, en svo bætist við 51 dalur í hreingerningargjald og 17 dalir í skatta.

Íbúðin er huggulega innréttuð, falleg og björt og í henni er er eitt tvöfalt rúm. Á staðnum er einnig rimlarúm fyrir ungabarn, hárblásari, straujárn og sjónvarp. Rúmföt, handklæði, sápa og salernispappír fylgja og þá er WiFi-nettenging í íbúðinni.

Eldhúsið er lítið en með öllu tilheyrandi til matreiðslu, ásamt kaffivél, tekatli og brauðrist. 

Airbnb

Í íbúðinni er allt sem þarf til að hafa það …
Í íbúðinni er allt sem þarf til að hafa það huggulegt. Ljósmynd/Airbnb
Eitt tvíbreitt rúm, en í íbúðinni er einnig rimlarúm.
Eitt tvíbreitt rúm, en í íbúðinni er einnig rimlarúm. Ljósmynd/Airbnb
Eldunaraðstaða er lítil en þar er allt sem þarf til …
Eldunaraðstaða er lítil en þar er allt sem þarf til matreiðslu. Ljósmynd/Airbnb
Stofan er lítil og hugguleg.
Stofan er lítil og hugguleg. Ljósmynd/Airbnb
Hér sést rýmið.
Hér sést rýmið. Ljósmynd/Airbnb
Baðherbergið er með sturtu og handklæði fylgja í leigunni.
Baðherbergið er með sturtu og handklæði fylgja í leigunni. Ljósmynd/Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert