Íris Líf vekur athygli fyrir hagnýt sparnaðarráð

Íris Lilja veit hvað hún syngur.
Íris Lilja veit hvað hún syngur. Samsett mynd

Hin 24 ára gamla Íris Líf Stefánsdóttir hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlasíðunni TikTok, en þar deilir hún góðum og hagnýtum sparnaðarráðum. Hún hefur smám saman byggt upp mikinn hóp fylgjenda, en hátt í tíu þúsund manns fylgja henni á samfélagsmiðlasíðunni.

Í gærdag deildi Íris Líf áhugaverðu myndskeiði þar sem hún útskýrði fyrir netverjum hvernig best sé að finna og bóka ódýr flug.

Ferðaráð Írisar Lífar:

  • Ekki ferðast með tösku

„Ég ferðast alltaf bara með bakpoka,“ segir Íris Líf, enda getur verið rándýrt að bæta við ferðatösku hjá lággjaldaflugfélögum

  • Hættu að skoða heimasíðu Icelandair

„Það eru ekki ódýr flug á heimasíðu Icelandair, nema kannski til Köben,” segir Íris Líf, sem hvetur fólk í ferðahug til þess að kynna sér Google Flights, en þar er mjög auðvelt að finna ódýr flug til áfangastaða í Evrópu og víðar.

Íris Líf gefur einnig stutta sýnikennslu um hvernig hún leitar að ódýrum flugum, meðal annars undir tíu þúsund krónum, á Google Flights. 

Leitarvélin sýnir flug frá Íslandi til Lundúna á aðeins 3.649 krónur, sem er gjöf en ekki gjald.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert