Ein vinsælasta Airbnb-íbúðin á Tenerife vekur hrifningu

Íbúðin er staðsett í höfuðborg Tenerife, Santa Cruz.
Íbúðin er staðsett í höfuðborg Tenerife, Santa Cruz. Samsett mynd/airbnb

Ein af uppáhaldsleiguíbúðum notenda Airbnb er að finna á Tenerife, nánar tiltekið í höfuðborginni Santa Cruz á norðaustanverðri eyjunni. Íbúðin er með 4,98 í einkunn af fimm á síðunni.

Stofan í íbúðinni er stór og í öðrum hluta hennar eru tvö hengirúm þar sem hægt er að slaka á með stórbrotið sjávarútsýni fyrir augum. Í sama rými er borðstofan. Eldhúsið er í sérrými og þar er einnig borðaðstaða og allt til alls til matreiðslu. 

Í svefnherberginu er eitt tvíbreitt rúm og salerni er inn af stofu. Við húsnæðið er rúmgott bílastæði en mælt er með að vera á bílaleigubíl á þessu svæði.

Í stofunni er 50 tommu skjár með aðgengi að Amazon Prime Video, Apple TV, Chromecast, Distney+, HBO Max og Netflix, m.a. Þá er einnig WiFi-nettenging. 

Aðgengi er að þvottavél og þurrkara og í íbúðinni er einnig loftræstikerfi. Hægt er að kynna sér umsagnir gesta sem dvalið hafa í íbúðinni á heimasíðu Airbnb.

Airbnb

Í íbúðinni er eitt svefnherbergi, borðstofa og stofa, eldhús og …
Í íbúðinni er eitt svefnherbergi, borðstofa og stofa, eldhús og baðherbergi. Ljósmynd/Airbnb
Tvíbreitt rúm er í svefnherberginu.
Tvíbreitt rúm er í svefnherberginu. Ljósmynd/Airbnb
Borðstofan og hengirúmin í stofunni.
Borðstofan og hengirúmin í stofunni. Ljósmynd/Airbnb
Eldhúsið er fullbúið og í sérrými innan íbúðar.
Eldhúsið er fullbúið og í sérrými innan íbúðar. Ljósmynd/Airbnb
Vinnupláss skilur að borðstofuna og stofuna.
Vinnupláss skilur að borðstofuna og stofuna. Ljósmynd/Airbnb
Stórbrotið útsýni, sófasett og flatskjár með hinum ýmsu alþjóðlegu sjónvarpsstöðvum.
Stórbrotið útsýni, sófasett og flatskjár með hinum ýmsu alþjóðlegu sjónvarpsstöðvum. Ljósmynd/Airbnb
Þeir gestir sem skilið hafa eftir athugasemdir segja að íbúðin …
Þeir gestir sem skilið hafa eftir athugasemdir segja að íbúðin sé nákvæmlega eins og sýnt er á myndunum. Ljósmynd/Airbnb
Íbúðin er afar hugguleg og sjarmerandi.
Íbúðin er afar hugguleg og sjarmerandi. Ljósmynd/Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert