Hin 51 árs gamla Rubia Daniels hefur staðið í ströngu síðustu ár við að gera upp sex hús, öll í mikilli niðurníslu, í bænum Mussomeli á Sikiley.
Fyrir tæpum sex árum keypti Daniels, sem er fædd og uppalin í Brasilíu, sex hús, skömmu eftir að hún rak augun í auglýsingar frá yfirvöldum í bæjum víða á Ítalíu sem vildu bregðast snöggt við fólksfækkun með því að bjóða ódýrt húsnæði til sölu, en flest, ef ekki öll, kröfðust mikilla viðgerða.
Daniels, skipulagsráðgjafi að mennt, lét það ekkert á sig fá, enda var tilboðið of gott til þess að hafna því, og hún meira en tilbúin í áskorun.
Daniels hefur gefið innsýn í endurbótaferlið á Instagram og hafa færslur hennar vakið mikla athygli.
Húsin keypti hún á heilar fimm evrur, en það samsvarar rétt rúmum sjö hundruð krónum, miðað við gengi dagsins.
Daniels hef tekið þau öll í gegn, fyrir aðeins brotabrot af fermetraverði á Íslandi, en samanlagður viðhalds- og viðgerðarkostnaður er á bilinu fimm til átta milljónir íslenskra króna.
Viðamiklum endurbótum á flestum húsanna er nú lokið og hyggjast fjölskyldumeðlimir Daniels, þar á meðal tvær aldraðar frænkur hennar, flytja til Mussomeli og eyða þar eftirlaunaárunum, áhyggjulausir.