Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og stjórnarformaður Faxaflóahafna, fór ásamt glæsilegum hópi kvenna í hjólaferð og siglingu um strendur Króatíu nýverið. Var þetta fyrsta hreyfiferð stjórnmálakonunnar eftir að hún gekkst undir liðskiptaaðgerð haustið 2023, en hún var búin að bíða lengi eftir að komast í aðgerðina.
„Já, ég var alveg staðráðin í að æfa nýja hnéð vel og mætti af krafti í ræktina þegar veikindaleyfi og endurhæfingu lauk. Þessi gamla skíða- og handboltakempa ætlaði sko ekki að láta eins og einn gervilið stoppa sig.“
Hvernig er að vera komin með stálhné?
„Það er alveg skrítið að vera komin með stálhné en maður verður bara að hafa húmor fyrir því.“
Aðspurð segist Þórdís Lóa hafa farið aðeins fram úr sér til að byrja með.
„Þetta byrjaði ekki vel!
Ég skráði mig á hjólanámskeið en það fór ekki betur en svo að ég náði að mæta í einn tíma því ég fór aðeins fram úr mér. Ég var að hlaupa með einn af ömmu-þríburunum út í bíl til að koma honum fyrir í barnbílstól og tókst ekki betur en svo að ég skellti hnénu í lás og endaði stokkbólgin og svekkt. En eins og maður segir: Fall er fararheill.“
Þórdís Lóa þurfti ekki að hugsa sig lengi um þegar föðursystir hennar lagði til að þær færu í hjólaferð.
„Já, það hljómaði mjög vel. Ég var búin að vera dugleg í ræktinni, bæði að hjóla og lyfta, og vildi ólm ögra mér og nýja hnénu.“
Þórdís Lóa ferðaðist til Króatíu ásamt 32 konum.
„Þetta var dásamleg ferð. Við sigldum á milli eyja, hjóluðum á daginn og skemmtum okkur á kvöldin. Við klæddum okkur meðal annars upp í anda The Great Gatsby sem var ótrúlega gaman.
Aðspurð segir Þórdís Lóa hnéð hafa staðist öll próf.
„Já, heldur betur. Hnéð stóðst öll próf!
Svona liðskipti eru mikil lífsgæði og þetta hefði aldrei gengið með laskaða hnéið mitt. Ég hef svo sannarlega öðlast nýtt líf.”
Þórdís Lóa ákvað að taka sig í gegn fyrir örfáum árum í þeirri von um að koma heilsunni og orkunni í góðan farveg. Blaðamaður forvitnaðist aðeins um lífstílsbreytinguna.
„Já, það er rétt. Ég hef verið í átaki sem fjölskyldan kallar „Lóa mjóa“ en það gengur fyrst og fremst út á það að komast í kjörþyngd á ný. Ég hef fengið frábæran stuðning frá lýðheilsulæknum, næringarfræðingum og þjálfurum - og síðast en ekki síst frá fjölskyldunni.“
Þórdís Lóa byrjaði að þyngjast þegar hún greindist með lungnasjúkdóm í miðjum kórónuveirufaraldrinum.
„Ég var sett á stera, byrjaði í lyfjameðferð og þyngdist mikið í kjölfarið. Það reyndist mér ansi erfitt.“
Þórdís Lóa segir ferlið hafa kennt sér ýmislegt.
„Um mitt ár 2022 ákvað ég að taka mig í gegn. Ég byrjaði að lyfta og hreyfa mig reglulega og öðlaðist hugarró. Mér tókst að breyta því sem mér hefur aldrei áður tekist og það er að vakna kl. 06 á morgnana og eiga sérstaka stund fyrir mig án vinnu, frétta, tölvupósts og alls áreitis. Tímann á milli 06-08 á morgnana nýti ég til að skrifa ævintýrasögu sem ég hef gengið með í maganum í langan tíma,” segir hún.
Hvernig hefur gengið?
„Þetta er búið að vera mikið „upp og niður“, fór hægt af stað en hefur gengið vel upp á síðkastið. Ég hef náð góðum tökum á mataræðinu og hreyfingu og er komin í kjörþyngd. Ánægðust er ég með nýja hnéð sem virkar vel og gerir mér kleift að hreyfa mig.“