Icelandair bætir við áfangastöðum

Þetta er erfitt val!
Þetta er erfitt val! Samsett mynd

Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust.

Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbúl og Miami. Vegna mikillar eftirspurnar hefur flugáætlun til Nashville verið framlengd inn í janúar og flugtímabilið til Hamborgar verið framlengt út október. Þá verður tíðni aukin til Alicante, Barselóna og Brussel.

Flogið verður til Malaga einu sinni til tvisvar í viku frá 6. september til 30. maí og til Edinborgar þrisvar til fjórum sinnum í viku frá 12. september til 12. apríl.

„Það er okkur sönn ánægja að auka úrval vetraráfangastaða okkar með því að hefja flug til Malaga og Edinborgar. Þá er það sérstaklega við hæfi að bæta skosku höfuðborginni við í ár þegar 80 ár eru frá fyrsta flugi Icelandair til Skotlands, sem jafnframt var fyrsta millilandaflug íslensks flugfélags.

Í fyrsta sinn í sögunni tilkynnum við fjóra nýja áfangastaði yfir vetrartímann og er það í takt við stefnu okkar um að vaxa utan háannatíma sumarsins en með innkomu nýrri og hagkvæmari flugvéla í flotann opnast tækifæri fyrir stærri vetraráætlun. Þannig getum við nýtt innviði okkar betur yfir vetrartímann og á sama tíma stuðlað að minni árstíðarsveiflu í íslenskri ferðaþjónustu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert