Inga Lind með sérhannaðan hatt fyrir Beyoncé-tónleika

Inga Lind lét gera hatt fyrir sig og dóttur sína …
Inga Lind lét gera hatt fyrir sig og dóttur sína fyrir tónleikana.

Inga Lind Karlsdóttir er stödd í Lundúnum með dóttur sinni Jóhönnu Hildi Árnadóttur. Mæðgurnar skelltu sér á tónleika með poppdívunni Beyoncé. 

Beyoncé er á tónleikaferðalagi um Norður-Ameríku og Evrópu. Tónleikarnir ganga undir nafninu Cowboy Carter og hefur verið vinsælt á meðal gesta að mæta í einhvers konar kúrekafatnaði. Inga Lind og Jóhanna tóku þetta auðvitað alla leið og voru með glæsilega brúna kúrekahatta.

Hattarnir eru frá Sigzon Hat's eða Sigurði Erni Þórissyni sem er eini hattari landsins. Hann sérhannar og býr til persónulega hatta. Hattar Ingu Lindar og Jóhönnu voru með leðurbót sem búið var að skrifa á „Cowboy Carter.“

Inga Lind deildi nokkrum myndum og myndskeiðum frá ævintýri þeirra mæðgna og verður þetta líklega ógleymanleg ferð. 

Sætar og spenntar fyrir Beyoncé.
Sætar og spenntar fyrir Beyoncé. Skjáskot/Instagram
Inga Lind var heilluð af Beyoncé.
Inga Lind var heilluð af Beyoncé. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert