Svartur bústaður til leigu þar sem sólin skín

Sveitalegur og heillandi bústaður á Austurlandi.
Sveitalegur og heillandi bústaður á Austurlandi. Samsett mynd

Rétt við Lagarfljótið við Egilsstaði er heillandi bústaður til leigu. Bústaðurinn er svartur á litinn með hvítum gluggum og dásamlegu útisvæði. Sumrin á þessum stað eru þekkt fyrir að vera sólrík og hlý og þess vegna kjörið að reyna að heimsækja Austurlandið í sumar.

Fjórir gestir komast fyrir í tveimur herbergjum. Eitt baðherbergi er í bústaðnum. Hann er innréttaður í hlýlegum sveitastíl, með gömlum munum í bland við nýja. Þarna ætti öllum að líða vel.

Bústaðurinn er steinsnar frá Egilsstöðum eða aðeins 12 kílómetrum. Hann er auglýstur til skammtímaleigu á vefsíðunni AirBnb.

Hátt til lofts og hlýlegt.
Hátt til lofts og hlýlegt. Skjáskot/AirBnb
Það er allt til alls í eldhúsinu.
Það er allt til alls í eldhúsinu. Skjáskot/AirBnb
Í bústaðnum eru eldri munir í bland við nýja.
Í bústaðnum eru eldri munir í bland við nýja. Skjáskot/AirBnb
Huggulegt svefnloft.
Huggulegt svefnloft. Sjáskot/AirBnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert