Töfrar hálendisins í Kerlingarfjöllum

Í Kerlingarfjöllum eru margar spennandi gönguleiðir um svæðið þar sem …
Í Kerlingarfjöllum eru margar spennandi gönguleiðir um svæðið þar sem líta má magnaða náttúru og víðerni miðhálendisins. Í sumar er boðið upp á daglega göngu um Hverabotn sem er einstök náttúruperla inn af Hveradölum. Ljósmynd/Aðsend

Í Kerlingarfjöllum má finna stórbrotna útsýnisstaði, gistingu við allra hæfig og mikið úrval afþreytingar. Opnun fjallvega, vorboðinn ljúfi, er fagnaðarefni allra fjallavina. Kjalvegur var opnaður sérstaklega snemma í ár, leiðin á hálendið er greið og tilvalið að gera sér ferð í Kerlingarfjöll. Hluti af töfrum hálendisins felst einmitt í leiðinni þangað. Þögnin sem einkennir grýttar auðnirnar er engu lík og fær ferðalanga til að staldra við og leggja við hlustir.

Leiðin í Kerlingarfjöll, sem er fjallgarður mitt á hálendi Íslands, liggur um Kjalveg og tekur um tvær klukkustundir frá Geysi þegar aðstæður eru góðar. Á sumrin er vegurinn fær flestum fjórhjóladrifnum bílum og á leiðinni er tilkomumikil náttúra við hvert fótmál – rjúkandi jarðhitasvæði og hrímkaldar jökulár í bland við snæviþakta fjallstinda og stórbrotna útsýnisstaði.

Hálendisböðin í Kerlingarfjöllum eru í miðjum Ásgarði, á bökkum Ásgarðsár, …
Hálendisböðin í Kerlingarfjöllum eru í miðjum Ásgarði, á bökkum Ásgarðsár, með ótrúlegt útsýni yfir fjallgarðinn sem umlykur dalinn. Ljósmynd/Aðsend

Með slökun og þægindi að leiðarljósi

Hálendismiðstöðin sem nú er starfrækt í Kerlingarfjöllum er hlýlegur griðastaður og er hvert rými hannað með slökun og þægindi að leiðarljósi. Þangað er kjörið að skella sér í dagsferð í sumar, láta sér líða vel og njóta fallegrar náttúru – slaka á í Hálendis­böðunum með einstakt útsýni til fjalla, gæða sér á góðum mat og stunda fjölbreytta útivist.

Í hálendismiðstöðinni er notalegur veitingastaður þar sem boðið er upp á ljúffengan mat í hlýlegu umhverfi. Boðið er upp á bragðgóðan hádegis- og kvöldverð, morgunverð og hefðbundið íslenskt vöfflukaffi. Vöfflurnar eru dásamlegar, með þeyttum rjóma, sultu og sírópi og eru í boði ásamt rjúkandi heitum bolla af kaffi eða súkkulaði á hverjum degi frá kl. 15-17.

Þögnin sem einkennir grýttar auðnirnar í Kerlingarfjöllum er engu lík …
Þögnin sem einkennir grýttar auðnirnar í Kerlingarfjöllum er engu lík og fær ferðalanga til að staldra við og leggja við hlustir. Þar er dásamlegt að ganga um og njóta. Ljósmynd/Aðsend

Bein tengsl við náttúru

Í Kerlingarfjöllum er boðið upp á gistingu við allra hæfi. Einföld tjaldgisting, þægindi á hótelherbergi og allt þar á milli. Á tjaldsvæðinu kemst þú í bein tengsl við náttúruna á þessum einstaka stað. Gestir á tjaldsvæðinu hafa aðgang að eldunaraðstöðu, salernum, sturtu og útigrilli í þjónustuhúsi og geta auk þess borðað á veitingastaðnum á hótelinu og keypt aðgang að Hálendisböðunum.

Í Hálendisböðunum í Kerlingarfjöllum er hlýleg og náttúruleg umgjörð enda …
Í Hálendisböðunum í Kerlingarfjöllum er hlýleg og náttúruleg umgjörð enda er aðstaðan hönnuð í fullkomnum samhljómi við umhverfið sem umlykur þig. Ljósmynd/Aðsend

Hálendisböðin í Kerlingarfjöllum eru í miðjum Ásgarði, á bökkum Ásgarðsár, með ótrúlegt útsýni yfir fjallgarðinn sem umlykur dalinn og er þar tilvalið að slaka á eftir ­viðburðaríkan dag eða safna orku fyrir næsta ævintýri. Aðgangur að böðunum fylgir með gistingu á hóteli og í einkaskálum en allir gestir geta keypt aðgang, hvort sem þeir gista á svæðinu eða ekki. Í Hálendisböðunum er meðal annars heit setlaug, kaldur pottur, glæsileg sána og bar þar sem hægt er að panta svalandi drykki til að njóta ofan í. Umgjörðin er hlýleg og náttúruleg enda er aðstaðan hönnuð í fullkomnum samhljómi við umhverfið sem umlykur þig.

Í hálendismiðstöðinni í Kerlingarfjöllum er notalegur veitingastaður þar sem boðið …
Í hálendismiðstöðinni í Kerlingarfjöllum er notalegur veitingastaður þar sem boðið er upp á ljúffengan mat í hlýlegu umhverfi. Vöfflurnar eru dásamlegar, með þeyttum rjóma, sultu og sírópi og eru í boði ásamt rjúkandi heitum bolla af kaffi eða súkkulaði á hverjum degi frá kl. 15-17.

Kraftmikið náttúruundur

Í Kerlingarfjöllum er einnig boðið upp á úrval afþreyingar á borð við fjallahjólreiðar, buggy-akstur, fjallaskíði og fleira. Margar spennandi gönguleiðir eru um svæðið þar sem líta má magnaða náttúru og víðerni miðhálendisins.

Í sumar er boðið upp á ­daglega göngu um Hverabotn sem er einstök náttúruperla inn af Hveradölum. Gengið er upp í átt að Mænisjökli upp á hæsta punkt Hverabotns þar sem stórkostlegt útsýni yfir dalinn blasir við. Hverabotn er hluti af háhitasvæði Kerlingarfjalla, sem er eitt virkasta háhitasvæði Íslands og er einstaklega ríkt að síbreytilegum jarðhitamyndunum. Gangan liggur um fáfarna slóða að þessu kraftmikla náttúruundri sem magnað er að berja augum.

Í Kerlingarfjöllum er eitthvað fyrir alla, og fátt betra en bíltúr um heillandi umhverfi íslensku óbyggðanna.

Kíktu við í sumar, hálendið er handan við hornið.

Hér má sjá meira um Kerlingarfjöll.

Í Kerlingarfjöllum er boðið upp á gistingu við allra hæfi. …
Í Kerlingarfjöllum er boðið upp á gistingu við allra hæfi. Einföld tjaldgisting, þægindi á hótelherbergi og allt þar á milli. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert