Fagna 6 ára sambandsafmæli í þyrluflugi á Mykonos

Brynjólfur og Karen Björg eru stödd á Myonos og virðast …
Brynjólfur og Karen Björg eru stödd á Myonos og virðast njóta lífsins til fulls. Skjáskot/Instagram

Karen Björg Lindsey og kærasti hennar, fótboltamaðurinn Brynjólfur Willumsson, hafa notið lífsins á grísku eyjunni Mykonos síðustu daga. Parið virðist hafa nýtt ferðina vel og deildu glæsilegum myndum úr ferðinni með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.

Brynjólfur er atvinnumaður í fótbolta og leikur með FC Groningen í hollensku úrvalsdeildinni ásamt því að vera lykilmaður í íslenska landsliðinu. 

Karen hefur skapað sér sterkan sess á samfélagsmiðlum með tæplega 30 þúsund fylgjendur á TikTok og um 7 þúsund á Instagram ásamt því að vinna í markaðsteymi íslenska íþróttamerkisins Kenzen.

Þyrluflug, strandklúbbar og einstakir veitingastaðir

Þar sem fótboltatímabilinu lauk nýlega nýta margir atvinnumenn sér þessa stuttu pásu milli tímabila til að ferðast og slaka á. Karen og Brynjólfur hafa svo sannarlega gert það með stæl; fóru í þyrluflug, notið sólarinnar á strandklúbbum, röltu um töfrandi götur eyjunnar og snætt á einstökum veitingastöðum með óviðjafnanlegu útsýni.

Parið skellti sér í þyrluflug um eyjuna.
Parið skellti sér í þyrluflug um eyjuna. Skjáskot/Instagram
Parið í þokkalegu standi að rölta um götur eyjunnar.
Parið í þokkalegu standi að rölta um götur eyjunnar. Skjáskot/Instagram

Meðal veitingastaða sem parið heimsótti eru:

Cocco Mykonos 

Ítalskur staður við sjóinn þar sem þau gæddu sér á ljúffengum réttum í rómantískri stemningu.

View this post on Instagram

A post shared by Karen Lindsay (@karenbjorrg)

Zuma Mykonos 

Japanskur staður, þekktur fyrir að bjóða upp á besta útsýni eyjunnar yfir stórkostlegt sólsetur.

View this post on Instagram

A post shared by Karen Lindsay (@karenbjorrg)

Interni Restaurant & Bar

Staðsett í fallegum, leynilegum garði í Matoyiannia-hverfinu og bíður upp á líflega stemningu með lifandi tónlist.

View this post on Instagram

A post shared by Karen Lindsay (@karenbjorrg)

Fagna 6 ára sambandsafmæli

Heimsókn þeirra á Mykonos var ekki einungis kærkomið frí heldur tilefni til að fagna, en þau héldu upp á 6 ára sambandsafmæli sitt á eyjunni.

Parið fagnar 6 ára sambandsafmæli.
Parið fagnar 6 ára sambandsafmæli. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert