Hvar er best að tjalda um helgina?

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrátt fyrir að veðrið hafi verið grátt og vætusamt undanfarið, sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu, þá er sumar og fólk farið að skella sér út á land í útilegur. Blaðamaður ferðavefs mbl.is kíkti yfir veðurspána og fann út hvar best er að tjalda þessa helgina.

Samkvæmt spánni eru það Vestmannaeyjar sem bjóða upp á mesta stöðugleikann í veðrinu um helgina, og því tilvalið tækifæri að skella sér þangað í góða útilegu. Tjaldsvæðið í Vestmannaeyjum býður upp á allt það helsta eins og rafmagn, þvottavélar, þurrkara, klósett, sturtur og leikvöll fyrir yngstu ferðalangana.

Afþreying fyrir alla fjölskylduna

Í Vestmannaeyjum er nóg um að vera fyrir alla aldurshópa. Hægt er að byrja daginn með góðri sundferð í Sundlaug Vestmannaeyja, sem er sérstaklega vinsæl vegna skemmtilegrar trampólín-rennibrautar. Fyrir þá ævintýragjörnu er upplagt að prófa að spranga, klífa Heimaklett eða önnur falleg fjöll eyjunnar. Þá er bátsferð í kringum eyjuna tilvalin leið til að sjá lunda og jafnvel hvali ef heppnin er með.

Einnig er hægt að skella sér í fjörhjólaferð í kringum Eldfell og auðvitað er skylda að heilsa upp á mjaldrana tvo, vinsælastu íbúa eyjunnar.

Að spranga er eitt af því sem margir prófa sem …
Að spranga er eitt af því sem margir prófa sem heimsækja Vestmannaeyjar og sumir segja að ekki sé hægt að vaxa upp úr því að njóta þess. Ómar Óskarsson
Kristín Viðja að sinna öðrum mjaldrinum í Vestmannaeyjum.
Kristín Viðja að sinna öðrum mjaldrinum í Vestmannaeyjum. mbl.is

Frábærir veitingastaðir

Vestmannaeyjar státa einnig af úrvali frábærra veitingastaða. Gott býður upp á klassíska rétti eins og vefjur, hamborgara, pasta og kjötrétti. Slippurinn sker sig úr með því að tengja saman gamlar hefðir og ferskar nýjungar, þar sem íslensk hráefni njóta sín í spennandi matargerð. Tanginn við höfnina og Pítsugerðin eru einnig vinsælir kostir. Fyrir þá sem langar í góðgæti úr bakaríi er upplagt að heimsækja Vigtina bakhús, og eftir góða sundferð eða má mæla með ísbúðinni Eydísi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert