Brekkugerði Guesthouse

Upplýsingar

Austurbyggð 26

806 Selfoss (dreifbýli)

7797762

brekkugerdi@brekkugerdi.is

https://www.brekkugerdi.is/

Brekkugerði Guesthouse er staðsett í Laugarási, Bláskógabyggð. Gistiheimilið er hlýlegt og smekklega innréttað, umlukið gróðurmiklum og skjólríkum garði í einstaklega fallegu umhverfi. Í boði eru 9 herbergi þar sem sjö hafa sérböð en tvö deila baði.

Gististaðurinn er mjög miðsvæðis á Suðurlandi og hentar því vel sem bækistöð í dagsferðir. Þannig er stutt í vinsælustu ferðamannastaði landsins svo sem Skálholt (5 mín.), Kerið (20-25 mín.), Þingvelli (55-60 mín.), Geysi (25-30 mín.), Gullfoss (35-40 mín.) og Gjánna (55-60 mín.). Síðan er auðvelt að heimsækja staði eins og t.d. Landmannalaugar, Heklu, Þjófafoss, Seljalandsfoss, Skógarfoss, Þórsmörk, Dyrhólaey, Reynisfjöru og jafnvel Vestmannaeyjar í dagsferðum.

Nóg framboð er af afþreyingu í næsta nágrenni svo sem stangveiðar, sundlaugar, söfn, golfvellir, flúðasiglingar, hestaferðir, jöklaferðir, Slakki o.fl. o.fl. Gististaðurinn er í eigu fjölskyldu sem býr á staðnum og er boðin og búin að aðstoða við hvaðeina með persónulegri þjónustu.