Hótel Reykjavík Centrum

Upplýsingar

Aðalstræti 16

101 Reykjavík

+354 514 6000

info@hotelcentrum.is

https://www.islandshotel.is/hotels-in-iceland/hotel-reykjavik-centrum

Hótel Reykjavík Centrum er fyrsta flokks hótel, sem er staðsett við eina af elstu götum borgarinnar.

Hótel Reykjavík Centrum er fyrsta flokks hótel í hjarta borgarinnar. Á hótelinu fá töfrar liðinna tíma að skína í gegn, enda er það staðsett við eina af elstu götum borgarinnar, Aðalstræti. Hótelið er byggt á gömlum grunni og elsti hluti hússins var byggður árið 1764.

Hótelið hefur hlotið 4 stjörnur í stjörnuflokkun Vakans sem og brons umhverfismerki Vakans. Vakinn er gæða- og umhverfismerki ferðaþjónustunnar á Íslandi.