Birta Dís fór í magnaða jógaferð til Srí Lanka

Birta Dís Kaldal.
Birta Dís Kaldal. Ljósmynd/Aðsend

Birta Dís Kaldal lét draum sinn rætast og fór með kærastanum sínum, Vigni Heiðarssyni, í ævintýralega ferð til Srí Lanka. Áherslan í ferðinni var jóga, slökun og strönd en upprunalega ætlaði Birta að læra að verða jógakennari í þessari ferð, en hún og Vignir heilluðust svo af landinu að þau ákváðu að stytta aðeins tímann í jóganu og skoða meira af landinu og kynnast menningunni.

Þau lentu í Srí Lanka á síðasta degi ársins, þann 31. desember árið 2023, og voru í landinu til 30. janúar, svo að þetta varð að mánaðarferð og fylltist þessi mánuður af minningum, upplifunum og nýjum tækifærum

Hvernig fluguð þið?

„Við þurftum bara að taka tvö flug á leiðinni út, fórum fyrst til London og gistum eina nótt á hóteli við flugvöllinn. Svo daginn eftir flugum við beint til Srí Lanka. Heimferðin var aðeins meira vesen, þrjú flug í röð og engin hvíld á milli.“

Srí Lanka heillaði Birtu Dís upp úr skónum og hún …
Srí Lanka heillaði Birtu Dís upp úr skónum og hún dvaldi þar á mjög fallegum stöðum með kærasta sínum. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig plönuðuð þið ferðina?

„Við plönuðum í rauninni voða lítið, og ef ég ætti að gefa eitt ráð, þá væri það að plana ferð til Srí Lanka sem minnst. Við keyptum bara flugmiða út, gistingu fyrir fyrstu þrjár næturnar og skráðum okkur í jógaskóla í viku. Restin af ferðinni þróaðist svo smám saman dag frá degi. Að vera ekki með eitthvað stíft plan gaf okkur svo miklu meira frelsi, við gátum fengið ráð frá öðrum ferðalöngum og heimafólki, eða bara farið eftir því sem okkur langaði í augnablikinu.“

Birta og Vignir fóru í nokkra jógatíma vítt og breitt …
Birta og Vignir fóru í nokkra jógatíma vítt og breitt um Srí Lanka, en Birta stefnir enn á að fara í jógakennara nám, á næstu árum. Ljósmynd/Aðsend

„Þegar við lentum í Srí Lanka tókum við strax leigubíl út í regnskóginn þar sem við gistum í trjákofa sem var uppi í fjöllunum. Okkur langaði ekki að vera í höfuðborginni, Colombo, heldur frekar vera í náttúrunni og á ströndinni.

Við erum hvorugt neitt sérstaklega hrædd við pöddur, en það kom okkur á óvart hversu mikið var af blóðsugum þarna. Það var frekar ógeðslegt að finna þær skríðandi upp eftir sér. Það leyndist líka froskur inni á baðherberginu okkar og við fundum sporðdreka fyrir utan kofann. En hjónin sem ráku staðinn voru algjörlega yndisleg og tóku svo vel á móti okkur. Þau gáfu okkur fullt af góðum ráðum um landið og sögðu okkur frá vini sínum sem hafði flutt til Íslands fyrir nokkrum árum. Þannig enduðum við á að skiptast á ráðum, þau um Srí Lanka og við um Ísland.“

Parið byrjaði ferðina á ævintýralegri dvöl í þessum trjákofa.
Parið byrjaði ferðina á ævintýralegri dvöl í þessum trjákofa. Ljósmynd/Aðsend

„Eftir dvölina í frumskóginum fórum við niður á suðurströndina, þar sem við fundum eins konar jógahótel sem heitir Sri Yoga Shala. Upphaflega ætluðum við að vera þar í tvær nætur, en okkur leið svo vel að við framlengdum í fjórar. Það voru þrír jógatímar á dag sem við máttum fara í og aðrir ferðalangar gátu keypt sig inn. Þarna fengum við að upplifa einn besta jógatíma sem við höfðum farið í, leiddan af kennara frá Indlandi. Maður var líka nokkurn veginn í jóga með öpunum, þar sem þeir hlupu um á þakinu og grindverkinu á meðan á tímanum stóð. Nokkrum dögum síðar fórum við í jógaskólann, Talalla Yoga Retreat. Námið stóð yfir í viku og samanstóð af þremur tímum á dag og einni vinnustofu. Við vorum aðeins sjö í bekknum, alls staðar að úr heiminum, og það skapaðist náið andrúmsloft og hópurinn náði ótrúlega vel saman. Þessi eina vika gaf mér svo mikið og ég mæli heilshugar með staðnum fyrir alla sem vilja kafa dýpra í jóga. Ég lærði helling sem nýtist mér ennþá í dag.“

Birta stundaði jóga í suðrænu umhverfi í Srí Lanka og …
Birta stundaði jóga í suðrænu umhverfi í Srí Lanka og lærði mikið, hér er hún í aerial-jóga. Ljósmynd/Aðsend

Fjölbreytt umhverfi á eyjunni

„Eftir jógaskólann héldum við áfram að ferðast meðfram suðurströndinni og tókum jógatíma hér og þar. Á einum stað fórum við í reikitíma, sem var ótrúlega dýrmæt og sérstök upplifun. Það hafði alltaf búið einhver forvitni í mér um reiki, enda stundaði amma mín það, og mig hafði lengi langað að kynnast því betur.

Okkur langaði síðan að sjá meira af eyjunni og Vignir fann skrifstofu sem seldi aðeins eina ferð, pakka sem innihélt einkabílstjóra, gistingu og skipulagða dagskrá í þrjá heila daga, og ákváðum við að fara í svona ferð. Farið var í safarí, í hina frægu lest frá Kandy til Ella og stoppaði hún í báðum borgunum. Við heimsóttum einnig heimili fyrir munaðarlausa fíla, fallegan grasagarð og teakra. Það var fínt að klára helstu túristastaðina á þessum þremur dögum.“

Þau komust nálægt alls kyns dýrum í safaríferðinni.
Þau komust nálægt alls kyns dýrum í safaríferðinni. Ljósmynd/Aðsend

„Eins og áður segir var þessi þriggja daga ferð farin með einkabílstjóra og reyndist hann okkur frábærlega. Hann talaði þokkalega ensku miðað við hvað almennt gerist hjá innfæddum Srí Lanka-búum, en samt náðum við ekki alltaf að skilja hvort annað. Þegar við kvöddum hann gáfum við honum þjórfé, ekki sérlega mikið að okkur fannst, sennilega um átta þúsund íslenskar krónur. En þá fyrst opnaði hann sig, þakkaði okkur af mikilli einlægni og fór m.a. að segja okkur frá börnunum sínum, menntun þeirra og fleira í þeim dúr. Við áttum alls ekki von á svona sterkum viðbrögðum, og ég áttaði mig betur á því þarna hvernig raunveruleikinn þeirra er svo allt annar en okkar, og hvað við erum oft ómeðvituð um forréttindin sem fylgja því að alast upp á Íslandi.“

Vignir og Birta nutu sín bæði vel, í rólegu og …
Vignir og Birta nutu sín bæði vel, í rólegu og afslöppuðu umhverfi og er þessi mánuður þeim afar eftirminnilegur. Ljósmynd/Aðsend

„Það komu líka dagar þar sem okkur langaði að gera mismunandi hluti, og þá bara splittuðum við okkur. Vignir fór til dæmis einn daginn í bátsferð með heimamanni sem hann hitti, og stoppaði á Cinnamon Island til að hitta „Kanilmanninn“, sem er þekktur fyrir að vinna kanil og hann sýndi honum hvernig unnið er úr ceylon-kanil sem er ræktaður á eyjunni. Vignir keypti auðvitað af honum kanil, sem við notum enn í dag; Srí Lanka er einmitt þekkt fyrir að vera með gæða kanil.“

Hér er kanilmaðurinn að störfum.
Hér er kanilmaðurinn að störfum. Ljósmynd/Aðsend

Er einhver staður eða upplifun sem stóð upp úr?

„Það var svo margt sem stóð upp úr en fólkið í Srí Lanka var svo ótrúlega indælt og alltaf til í að hjálpa. Ég hitti bókstaflega ekki einn leiðinlegan einstakling. Ég sakna líka bara hversdagsleikans, að hoppa í sjóinn, fá mér kókoshnetu, skella mér í nudd fyrir nokkra þúsund kalla og alls konar annað smálegt sem gerði dagana svo góða. Síðustu dagarnir voru líka dásamlegir og algjörlega fullkominn endir á ferðinni.

Við fundum Airbnb-hús sem var nýbúið að birtast á síðunni, svo við vorum fyrstu gestirnir þar. Húsið var rétt hjá ströndinni í Matara, í göngufæri við kaffihús, ströndina og jógastúdíó. Samt vorum við svolítið út af fyrir okkur, umkringd gróðri og með einkasundlaug í garðinum. Maðurinn sem átti húsið var líka svo almennilegur og kom daglega með vatn og ávexti handa okkur.“

Birta stakk sér til sunds á yndislegri strönd í suður …
Birta stakk sér til sunds á yndislegri strönd í suður Srí Lanka. Ljósmynd/Aðsend

Af hverju völdu þið að ferðast til Srí Lanka?

„Við höfðum hvorugt farið þangað áður og það var einmitt ástæðan fyrir því að við völdum þetta land. Okkur langaði að upplifa nýjan stað saman. Srí Lanka er eyja rétt sunnan við Indland, og indversk áhrif sjást víða í menningu og matargerð. Samt sem áður fannst mér suðurströndin líka æðisleg og hún er töluvert vestrænni, með sætum kaffihúsum, brimbrettamenningu og jóga.“

Kaffi og lestur í fallegu umhverfi, á Sri Yoga Shala …
Kaffi og lestur í fallegu umhverfi, á Sri Yoga Shala hótelinu. Ljósmynd/Aðsend

Langar þig að ferðast meira um Asíu?

„Ég fór í litla reisu eftir að ég útskrifaðist úr Verzlunarskólanum og ferðaðist þá nokkuð mikið um Asíu. Ég fór einnig aftur til Balí í fyrra og var þar í þrjár vikur með Vigni. Ég á enn eftir að fara til Nepal og Filippseyja, lönd sem heilla mig mjög mikið. Mig langar einnig að upplifa aðrar heimsálfur, og við höfum rætt að ferðast um Suður-Ameríku næst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert