Barnshafandi konur ættu að hreyfa sig

Dagmar Heiða Reynisdóttir segir að barnshafandi konur ættu klárlega að …
Dagmar Heiða Reynisdóttir segir að barnshafandi konur ættu klárlega að hreyfa sig. Hanna Andrésdóttir

Hjúkrunarfræðingurinn Dagmar Heiða Reynisdóttir hefur kennt meðgönguleikfimi í 10 ár, en hún rekur fyrirtækið Fullfrísk. Dagmar segir að þungaðar konur ættu klárlega að hreyfa sig, enda hafi líkamsrækt marga góða kosti í för með sér.

Hreyfingin hefur svo marga kosti. Hún eykur bæði þol og styrk, sem gerir daglegt líf miklu auðveldara. Fæðingin sjálf verður gjarnan auðveldari og maður er fljótari að jafna sig. Auk þess eru minni líkur á að konur sem eru duglegar að hreyfa sig á meðgöngunni bæti of mikið á sig. Þær eru jafnan fljótari að ná fyrri þyngd. Svo sofa þær yfirleitt betur og hafa þar af leiðandi betra starfsþrek. Hreyfing getur líka fyrirbyggt eða dregið úr ýmsum kvillum sem gera vart við sig á meðgöngunni, svo sem stoðkerfisverkjum og þvagleka. Íþróttaiðkun hefur einnig góð áhrif á harðlífi, krampa í fótleggjum, æðahnúta og ýmislegt fleira. Svo ekki sé talað um andlega líðan því hreyfing hefur góð áhrif á meðgöngu- og fæðingarþunglyndi. Það er líka gott að komast út úr húsi og hitta aðrar konur í svipuðum sporum,“ segir Dagmar, en bætir við að konur þurfi þó að fara varlega af stað og hlusta á líkamann.

„Flestar konur geta haldið áfram nokkurn veginn sams konar þjálfun og þær eru vanar, en það eru þó ýmsar æfingar sem gott er að varast. Ef konur eru farnar að fá verk í bak eða grind ættu þær að hægja á sér. Á meðgöngunni slaknar á öllum liðböndum og því nauðsynlegt að vera skynsamur, það er nefnilega erfitt að snúa til baka ef maður gerir einhverja vitleysu. Almennt séð myndi ég einnig varast of miklar þyngdir á neðri hlutann því grindin getur verið viðkvæm. Konur ættu einnig að forðast að gera æfingar á öðrum fæti. Þær ættu að reyna að hafa jafnt álag á grindina og ekki gera uppstig, hnébeygjur á öðrum fæti eða æfingar þar sem myndast ójafnvægi. Þá er ég sérstaklega að tala um þegar farið er að sjást vel á þeim og þyngdarpunkturinn hefur breyst. Þegar hendur eru þjálfaðar er þó óhætt að halda áfram að vera með miklar þyngdir,“ segir Dagmar og bætir við að allur gangur sé á því hvenær konur kjósi að mæta í meðgönguleikfimi.

Þungaðar konur geta alveg rifið í lóð.
Þungaðar konur geta alveg rifið í lóð. Morgunblaðið / Hanna Andrésdóttir

„Konur eru að koma allt frá 12. viku og margar æfa fram á síðasta dag. Það hafa þó líka verið að koma til mín konur sem hafa haldið sinni líkamsrækt áfram, og skella sér svo til mín við 30 vikur. Taka kannski eitt námskeið í lokin. Þær sem hafa heilsu til eru síðan gjarnan að æfa fram að fæðingu, en það er ótrúlega gaman að fylgjast með þeim. Þær eru jafnvel farnar að ganga fram yfir og maður bíður spenntur eftir fréttum,“ segir Dagmar, sem leggur mikla áherslu styrktaræfingar í tímum.

„Ef þær eru vanar að hreyfa sig geta þær haldið þeirri hreyfingu áfram á meðan þær treysta sér til. Þær verða þó að hlusta á líkamann og taka út æfingar sem eru óþægilegar,“ segir Dagmar og bætir við að ef konur séu í vafa sé alltaf gott að fá ráðleggingar. Hún mælir einnig með því að konur sem ekki hafa stundað líkamsrækt áður leiti ráða hjá þjálfara sem þekkir hvað má, og hvað má ekki.

„Fyrst og fremst ættu þær þó að fara rólega af stað, og ekki ætla sér of mikið. Svo eru almennar styrktaræfingar alltaf góðar. Bakæfingar eru til dæmis góðar, sem og allar grindarbotnsæfingar, en við gerum mikið af þeim í tímum. Það er best að taka sitt lítið af hverju og reyna að taka bak og grindarbotn með. Þá er maður í góðum málum.“

Konur sem eru forvitnar um hreyfingu á meðgöngu geta kíkt á heimasíðuna fullfrísk en Dagmar heldur einnig úti samnefndri Facebook-síðu. Meðgöngutímarnir fara fram í Sporthúsinu.

Konur hafa bæði gagn og gaman af því að hreyfa …
Konur hafa bæði gagn og gaman af því að hreyfa sig á meðgöngu. Morgunblaðið / Hanna Andrésdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert