Sársaukafull fullnæging á meðgöngu

Konan segir að frá sjöundu viku hafa fylgt fullnægingu hræðilegir …
Konan segir að frá sjöundu viku hafa fylgt fullnægingu hræðilegir verkir, oft svo sárir að fullnæging er engan vegin þess virði.

Ólétt kona fær mikla verki samhliða fullnægingu snemma á meðgöngu. Hún sendir fyrirspurn á doktor.is sem bendir á að um afar óvenjulegt óvenjulegt ástand sé að ræða og hún þurfi að leita til læknis. 

Konan segir að frá sjöundu viku hafa fylgt fullnægingu hræðilegir verkir, oft svo sárir að fullnæging er engan vegin þess virði. Hún er komin á tólftu viku þegar hún sendir spurningina á doktor.is


„Það er samt erfitt að sætta sig við að upplifun sem venjulega er góð sé nú slæm og því höfum við, verðandi foreldrar, prófað okkur aðeins áfram, sirka einu sinn í viku og það er alltaf vont, misslæmt þó. Oft er ég í keng í marga tíma á eftir. Af hverju í ósköpunum er þetta svona? Ég hef aldrei heyrt um neitt þessu líkt. Ég veit að ég er með einhverja samgróninga í kjölfar tveggja legslímflakksaðgerða og hef á köflum haft ansi sára verki þeim tengda, það sem af er meðgöngunni. Þeir eru þó aðeins vinstra megin, fullnægingarverkirnir (öfugsnúið orð!) eru báðum megin. Allar bækur og netsíður, ásamt upplýsingum frá ljósmóður halda því fram að kynlíf sé í fínu lagi á meðgöngu. Það er kannski vissara að taka það fram að ég þarf engar rosalegar tilfæringar til að fá fullnægingu, fyrst og fremst bara örvun á sníp. Mér þætti afskaplega vænt um að fá einhver svör við þessu!"


Dagný Zoega ljósmóðir svarar og segir að það sé rétt að undir flestum kringumstæðum sé ekkert athugavert við að stunda kynlíf á meðgöngu. „Helstu frábendingar eru hótandi fyrirburafæðing eða sýking. Vegna m.a. hormónaáhrifa eru flestar konur kynferðislega virkari á meðgöngu en ella og hafa oft meiri ánægju af kynlífi en fyrir getnað. En einstaka kona upplifir þó kynlíf á neikvæðan hátt – annað hvort vegna andlegra þátta eða vegna líkamlegra þátta sem upp koma á meðgöngu.“


Svona slæmir verkir, eins og hér er lýst, eru þó sjaldgæfir og benda að líkindum til að eitthvað sé ekki eins og það á að vera. Þar getur verið um að ræða blöðrur á eggjastokkum, samgróninga, aftursveigt leg, þvagfærasýkingu eða sýkingu í leggöngum og eins getur þetta verið vegna einhvers tengdu meðgöngunni eins og óeðlilegum samdráttum í legi eða fylgjustaðsetningu. Þó finnst mér e.t.v. líklegast að um svokallað ,,pelvic congestion" sé að ræða en það eru einskonar æðahnútar í kviðarholi sem gera það að verkum að blóðið á erfiðara með að streyma um æðarnar upp úr kviðarholinu en niður í það. Við fullnægingu streymir mikið blóð til grindarbotns, legs og grindarholsins en séu æðalokurnar lélegar eða mikil mýking á æðunum á það erfiðara með að streyma til baka og því geta fylgt verkir eins og fólk sem er með æðahnúta á fótum upplifir oft eftir langar stöður. Þegar við bætist æðamýking og stækkandi umfang legs getur þetta orðið enn verra. Sé um ,,pelvic congestion" að ræða er fátt hægt að gera en sumum hefur reynst vel að liggja á fjórum fótum með axlirnar niðri á dýnu og rassinn upp í loft. Það hjálpar blóðinu að streyma til baka.
Dagný tekur fram að hvort sem þessi greining sé rétt hjá mér eða ekki ættir hin verðandi móðir að láta lækni skoða sig því geta þessir verkir geta átt sér aðrar og jafnvel alvarlegri skýringar sem þarfnast virkari meðhöndlunar.

Greinin á doktor.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert