Ekki gleyma sumarlestrinum!

Það er afar mikilvægt fyrir lestrarfærni barna að foreldrar haldi …
Það er afar mikilvægt fyrir lestrarfærni barna að foreldrar haldi yndislestri að börnum sínum á sumrin.

Nú er sumarleyfi grunnskólabarna handan við hornið en íslensk grunnskólabörn eru að jafnaði 10-11 vikur í sumarfríi. Fyrir börnunum er þetta langa frí eflaust kærkomið en það hefur hins vegar verið rannsakað að sumarfrí nemenda hefur í för með sér ákveðna afturför fyrir nám þar sem fyrri þekking og færni gleymist þegar henni er ekki haldið við yfir sumartímann. Þetta eru svokölluð sumaráhrif.

Nauðsynlegt fyrir börn að viðhalda lestri yfir sumartímann

Afturför í lestrarfærni getur numið einum til þremur mánuðum á hverju sumri og hjá barni í 6.bekk, sem hefur aldrei lesið yfir sumartímann þá getur uppsöfnuð afturför numið einu og hálfu skólaári. Talið er að sumarfrí séu vissulega nauðsynleg og ekki endilega mælst til þess að skipulögðu námi sé haldið að börnum á sumrin en góð lestrarfærni liggur til grundvallar og auðveldar nemendum allt nám svo það er ákaflega mikilvægt að henni sé haldið við yfir sumartímann segir í tilkynningu frá Menntamálastofnun. Yngstu nemendurnir,  í  1.-4. bekk, eru sérstaklega viðkvæmir fyrir sumaráhrifunum en börn sem glíma við litla lestrarmenningu heima fyrir eða eiga annað móðurmál en íslensku eru einnig í áhættuhópi.

Rannsóknir sýna afturför ef þekkingu er ekki haldið við

Rannsóknir sýna einnig að ekki reynist nauðsynlegt að lesa meira en fjórar til fimm bækur yfir sumarið til að viðhalda lestrarfærninni og auðvitað leiðir mikill lestur til margs konar ávinnings fyrir skólagöngu og almenna velsæld nemenda. Sá ávinningur birtist í bættri lestrarfærni, miklum orðaforða, bættum lesskilningi, aukinni færni við ritun og svona mætti lengi telja.

Taka má fram að útlán bókasafnanna fyrir börn undir 18 ára aldri eru ókeypis og með það í huga vilja Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna og Menntamálastofnun hvetja nemendur og foreldra til lestrardáða í sumar og heimsækja bókasöfnin.

Sumarlæsisdagatalið inniheldur spennandi leiðir að lestri og getur verið skemmtileg …
Sumarlæsisdagatalið inniheldur spennandi leiðir að lestri og getur verið skemmtileg leið til að hvetja börn til lestrar í sumarfríinu.


Hér má smella á sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar. Það inniheldur spennandi leiðir að lestri og getur verið skemmtileg leið til að hvetja börn til lestrar í sumarfríinu. Læsisdagatalið hefur verið þýtt á ensku og pólsku. Þau ásamt öðrum fróðleik um sumarlestur má sjá á vef Menntamálastofnunar.  Á vefnum Lesum meira fékk Menntamálastofnun fékk nokkra þekkta einstaklinga sem hafa notið velgengni í sínu fagi, leiklist, tónlist og íþróttum, til að tjá sig um upplifun þeirra af lestri og um mikilvægi lesturs og fjölbreytts orðaforða í lífi þeirra og starfi. Myndböndin voru unnin með það að leiðarljósi að vekja unglinga til vitundar um gildi lesturs þegar kemur að því að takast á við þau tækifæri sem lífið hefur upp á að bjóða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert