Gerður ferðalangur, mannakindur og fleira skemmtilegt um helgina

Mikið að gerast i barnamenningu um helgina. Myndin er frá …
Mikið að gerast i barnamenningu um helgina. Myndin er frá Gerðasafni mbl.is/Gerðasafn

Fjöl­skyld­an á mbl.is er í sam­starfi við viðburðavef­inn Úllend­úl­len.is um viðburði helgar­inn­ar hverju sinni og hér hafa þeir tekið sam­an hvað fjöl­skyld­ur geta gert skemmti­legt sam­an: 

Listir og skemmtilegir og fjölskylduvænir menningarviðburðir krydda helgina sem er framundan. Listahátíð í Reykjavík stendur nefnilega enn yfir og er það algjörlega frábær viðburður fyrir alla fjölskylduna. Það er nefnilega fátt betra til að bæta andann, þekkinguna og bara lífið allt en list sem auðgar. Hún bætir og kætir eins og sagt var um Ópalið í gamla daga.

Frábærir sprelligosar eru komnir í gírinn eins og leikhópurinn Lotta. Svo er líka skemmtileg fjölskylduvæn leir- og teiknismiðjan í Gerðarsafni í Kópavogi sem heitir “Gerður ferðalangur” 

Fyrir þá sem vilja gera eitthvað allt annað en heimsækja skipulega viðburði er margt hægt að gera.  

Það er til dæmis hægt að fara í göngu- og hjólatúra og skoða listaverkin í umhverfinu, prófa leikvelli og æfingatæki sem er búið að setja upp um allt eða fara í frisbígolf en víða eru vellir fyrir alla fjölskylduna. Hér eru upplýsingar um frísbígolfvelli á Íslandi. Það er nefnilega ótrúlega gaman að fara í frisbígolf. Svo er hægt að fara á bílnum niður í bæ og skoða listaverkin sem eru víða á veggjum og fólk tekur ekki eftir í amstri hversdagsins. Í bílakjallara Seðlabankans við Kalkofnsveg eru til dæmis frábærar myndir málaðar á veggina.

Leikhópurinn Lotta er kominn á kreik á nýjan leik. Nú er það leikritið um Gosa sem hópurinn sýnir þjóðinni um allar koppagrundir. Við fundum auðvitað út hvar leikhópurinn verður hverju sinni: Hvar er leikhópurinn Lotta í dag?

Svo er alltaf gaman að leita að skemmtilegum dýrum. Við Elliðaárdalinn eru alveg hellingur af kanínum: Kanínur er kát og krúttleg dýr

Það er líka alltaf hægt að fara í frisbígolf. Það er frábær leikur og vellirnir eru bókstaflega útum allt: Allt um frisbígolf og vellina

Heiðmörk er líka algjör ævintýrastaður fyrir fjölskylduna. Þar er til dæmis hægt að fara í ratleik: Ratleikur fyrir alla fjölskylduna 

Mannakindur Listahátíðar
Mannakindur Listahátíðar mbl.is/Listaátíð

Laugardagur

  • Leikhópurinn Lotta er á svaka þeysireið þessa dagana. Klukkan 11 á laugardag er hópurinn á Höfn í Hornafirði og síðar um daginn á Djúpavogi. Hér verður leikhópurinn Lotta á Austurlandi og víðar
  • Fjölskyldustund í Gerðarsafni í Kópavogi sem fer fram á íslensku, arabísku, frönsku og ensku. Í aðalhlutverki eru ferðalög listakonunnar Gerðar Helgadóttur. Meira hér:Frábær fjölskyldusmiðja í Kópavogi
  • Kindahópurinn í Transhumance kemur fram í Veröld – húsi Vigdísar í tvígang bæði á laugardag og sunnudag. Þetta verður frábær viðburður. Meira hér: Kindurnar á Listahátíð
  • Þeir sem vilja geta komið í Ráðhúsið í Reykjavík um helgina og búið til teppahús. Tékkið á Teppaborginni í Reykjavík

 

Sunnudagur

Hér er tengill á umfjöllun Úllendúllen fyrir fjölskylduviðburði helgarinnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert